Fínasta veður sunnan- og vestanlands en snjókoma norðaustantil á morgun Atli Ísleifsson skrifar 3. júlí 2023 07:15 Gert er táð fyrir hita um og yfir tuttugu stigum á Suðurlandi um helgina. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægum áttum næstu daga þar sem verður væta með köflum og svalt í veðri norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu sunnan- og vestanlands og fremur hlýtt.
Gera má ráð fyrir hita á bilinu fimm til tuttugu stig að deginum í dag, svalast norðantil en hlýjast á Suðurlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það kólni á morgun, einkum fyrir norðan og megi búast við slyddu eða jafnvel snjókomu á fjallvegum norðaustantil. „Mikilvægt er fyrir ferðalanga á þeim slóðum að fylgjast með veðurspám og færð á vegum. Síðan er að sjá að það veði þurrt norðaustan og austantil og eins hækki hitinn ofurlítið þegar líður á vinkuna. Á Suður- og Vesturlandi verður líklega alveg þurrt og það mun einnig hlýna þegar líður á vikuna og eru spár að gefa til kynna hita um og yfir 20 stigum á Suðurlandi um næstu helgi. Svo það er um að gera að krossa bæði tær og fingur í von um að það rætist,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Rigning eða súld norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 15 stig að deginum, mildast sunnanlands. Á fimmtudag og föstudag: Fremur hæg norðlæg átt. Skýjað og þurrt að kalla fyrir norðan og austan, en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hlýnar lítið eitt. Á laugardag: Líklega hæg breytileg átt með dálítilli vætu suðaustan- og austantil, en bjart að mestu suðvestanlands. Hiti víða 10 til 18 stig að deginum. Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Skýjað fyrir austanen áfram bjart að mestu um landið vestanvert. Hlýtt í veðri, einkum sunnanlands.
Veður Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Sjá meira