Þrjátíu fylgdarlaus börn í úrræðum ýmissa sveitarfélaga Lovísa Arnardóttir skrifar 8. júlí 2023 19:20 Guðbjörg segir gott að hafa fólk á skrá ef að börnunum fjölgar. Vísir/Sigurjón Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) auglýsti nýverið eftir vistforeldrum fyrir fylgdarlaus börn á flótta. Frá upphafi síðasta árs hafa borist 105 beiðnir um hagsmunagæslu fylgdarlausra barna, oftast drengja.
Nú þegar eru 30 börn í vistun hjá ýmsum sveitarfélögum eða í úrræðum. Aðeins ein umsókn hefur borist vegna auglýsingarinnar sem var birt um miðjan síðasta mánuð. Börnin koma víða að. Vísir/Rúnar Í auglýsingunni segir: „Óskað er eftir áhugasömu fólki sem er tilbúið að vista barn á heimili sínu til lengri eða skemmri tíma. Æskilegt er að þeir sem taka að sér börn í slíkum aðstæðum hafi áhuga á málefnum barna á flótta, mismunandi menningu þeirra, trú og hefðum og/eða tali tungumál þeirra. Jafnframt er æskilegt að viðkomandi hafi góða þekkingu á íslensku samfélagi og sé í stakk búin/n/ð að styðja við þátttöku barnsins í samfélaginu. Barna- og fjölskyldustofa mun bjóða uppá fræðslu fyrir verðandi vistforeldra. Mikilvægt er að umsækjendur hafi sveigjanlegan vinnutíma.“ Mikil fjölgun flóttafólks Guðbjörg G. Steinsdóttir, teymisstjóri fósturteymis hjá Barna- og fjölskyldustofu, segist ekki geta sagt til um það hvort það hafi verið fjölgun meðal fylgdarlausra barna á Íslandi en síðustu tvö ár hefur verið gríðarleg fjölgun flóttafólks á Íslandi. „Maður veit aldrei hvenær er von á fjölgun og því er gott að hafa vistforeldra á skrá,“ segir Guðbjörg en flest þeirra barna sem hingað koma fylgdarlaus eru á aldrinum 15 til 17 ára. Þau 105 sem komu í fyrra og í ár eru til dæmis frá Afganistan, Úkraínu, Palestínu og Venesúela. Börnin eru öll sett í aldursgreiningu og þar kemur stundum fram að börnin séu eldri en 18 ára, og því ekki börn. „Yngstu sem hafa komið eru átta ára, en það er mjög sjaldgæft.“ Sveigjanlegur vinnutími og opinn armur Spurð hvað felst í því að vera vistforeldri segir hún að það sé að opna heimili sitt fyrir barni og vera fjölskylda. „Að styðja við barnið á meðan það fær lausn sinna mála á Íslandi,“ segir hún og að gott sé að fólk sé í sveigjanlegri vinnu svo að það geti fylgt barninu í þau úrræði sem það getur þurft að leita í, eins og aldursgreiningu eða í áfallastuðning í Barnahúsi. Til að geta sótt um sem vistforeldri þarf að skila inn gögnum til Gæða- og eftirlitsstofnunar en meðal skilyrða er hreint sakavottorð. Menningartengsl og tungumálakunnátta eru kostur. Gerð er úttekt á heimili og umsækjendur teknir í viðtal. Guðbjörg segir að það sé ekkert því til fyrirstöðu að vera með önnur börn á heimilinu en að þau verði að sjálfsögðu að vera til í að búa með fylgdarlausu barni líka. Vistforeldrar fá greitt fyrir að vista barnið en það er á hendi sveitarfélaga að semja við vistforeldra um þá upphæð sem fylgir hverju barni. Misjafnt er hversu lengi börnin þurfa að dvelja hjá vistforeldrum en Guðbjörg segir að það standi fólki ávallt opið að sækja fósturforeldranámskeið og taka barnið lengur að sér, eða jafnvel til frambúðar. Guðbjörg segir að fólk geti búið hvar sem er á landinu vilji það verða vistforeldrar en að börnin þurfi flest að sækja í úrræði á höfuðborgarsvæðinu sem fólk þarf að geta farið með þeim í. Í haust verður námskeið hjá BOFS fyrir áhugasama en hægt er að kynna sér málið betur hér.
Flóttamenn Flóttafólk á Íslandi Réttindi barna Barnavernd Tengdar fréttir Útlendingafrumvarpið samþykkt Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega. 15. mars 2023 20:47 Fordæma brottvísun á ungmenni sem kom sem fylgdarlaust barn Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fordæmir að íslensk stjórnvöld hafi vísað úr landi ungmenni sem til landsins sem fylgdarlaust barn rétt eftir að það varð sjálfráða á fimmtudag. Samtökin ítreka áköll sín um að íslensk stjórnvöld hætti að senda hælisleitendur til Grikklands. 5. nóvember 2022 07:45 Óttast um öryggi barna í varðhaldi í Líbíu UNICEF segir að 751 kona og 255 börn, þar á meðal fimm fylgdarlaus börn og 30 nýburar, séu meðal þeirra sem færð voru í varðhald í borginni. 14. október 2021 14:01 Hundruð fylgdarlausra barna eftir eldgos í Kongó Tugþúsundir íbúa hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir að eldgos hófst skyndilega í Nyiragongofjalli fyrir rúmri viku. 31. maí 2021 09:48 Tillögu um móttöku flóttabarna drepið á dreif – „Á meðan deyja börn á Lesbos“ Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði þann 30. september lagði ég fyrst fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir því yfir að Hafnarfjarðarbær er reiðubúinn til þess að taka á móti fylgdarlausum börnum sem búið hafa við hræðilegar aðstæður á eyjunni Lesbos í Grikklandi. Nú þegar verði hafnar viðræður við ríkið um móttöku þessara fylgdarlausu barna.“ 19. janúar 2021 18:00 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Sjá meira
Útlendingafrumvarpið samþykkt Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega. 15. mars 2023 20:47
Fordæma brottvísun á ungmenni sem kom sem fylgdarlaust barn Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fordæmir að íslensk stjórnvöld hafi vísað úr landi ungmenni sem til landsins sem fylgdarlaust barn rétt eftir að það varð sjálfráða á fimmtudag. Samtökin ítreka áköll sín um að íslensk stjórnvöld hætti að senda hælisleitendur til Grikklands. 5. nóvember 2022 07:45
Óttast um öryggi barna í varðhaldi í Líbíu UNICEF segir að 751 kona og 255 börn, þar á meðal fimm fylgdarlaus börn og 30 nýburar, séu meðal þeirra sem færð voru í varðhald í borginni. 14. október 2021 14:01
Hundruð fylgdarlausra barna eftir eldgos í Kongó Tugþúsundir íbúa hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir að eldgos hófst skyndilega í Nyiragongofjalli fyrir rúmri viku. 31. maí 2021 09:48
Tillögu um móttöku flóttabarna drepið á dreif – „Á meðan deyja börn á Lesbos“ Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði þann 30. september lagði ég fyrst fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir því yfir að Hafnarfjarðarbær er reiðubúinn til þess að taka á móti fylgdarlausum börnum sem búið hafa við hræðilegar aðstæður á eyjunni Lesbos í Grikklandi. Nú þegar verði hafnar viðræður við ríkið um móttöku þessara fylgdarlausu barna.“ 19. janúar 2021 18:00