Staðfestir að hann mæti til leiks á næsta tímabili Smári Jökull Jónsson skrifar 13. júlí 2023 09:31 LeBron ætlar ekki að leggja skóna á hilluna alveg strax. Vísir/Getty LeBron James staðfesti í nótt að hann ætlar að spila í NBA-deildinni á næsta tímabili. James hafði áður ýjað að því að hann myndi leggja skóna á hilluna.
James var mættur á afhendingu ESPY verðlaunanna í nótt en þar eru íþróttamenn í Bandaríkjunum verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína á árinu. Eftir að liði Los Angeles Lakers var sópað úr úrslitakeppni NBA-deildarinnar af verðandi meisturum Denver Nuggets í vor, sagði James að hann þyrfti að íhuga það hvort hann myndi halda áfram að spila körfubolta. Hann sagði að hann yrði að spyrja sjálfan sig hvort hann gæti haldið áfram að skila frammistöðu „án þess að svindla í leiknum“ og „gefið allt sem hann ætti í íþróttina.“ James lék frábærlega á tímabilinu. Hann skoraði 28,9 stig að meðaltali á síðustu leiktíð, tók 8,3 fráköst og gaf 6,8 stoðsendingar. Magnaðar tölur fyrir 38 ára gamlan leikmann. „Þegar sá dagur kemur að ég get ekki gefið allt mitt á gólfinu, þá er ég búinn. Sem betur fer fyrir ykkur er sá dagur ekki í dag,“ sagði James á afhendingu verðlaunanna. Næsta tímabil verður það tuttugasta og fyrsta hjá James í NBA-deildinni en hann hefur fjórum sinnum orðið NBA-meistari og fjórum sinnum verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar.
NBA Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Sjá meira