Thompson gæti yfirgefið Golden State næsta sumar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. október 2023 16:31 Klay Thompson í kunnuglegri stöðu. getty/Ezra Shaw Klay Thompson hefur leikið allan sinn feril í NBA-deildinni með sama liðinu, Golden State Warriors. Það gæti breyst næsta sumar.
Samningur Thompsons við Golden State rennur út eftir næsta tímabil en lítið hefur þokast í samningaviðræðum hans við félagið að sögn körfuboltavéfréttarinnar Adrians Wojnarowski. „Mér er sagt að það hafi ekki orðið nein breyting á varðandi framlengingu á samningi hans við Golden State. Það ber enn talsvert í milli þegar kemur að lengd samningsins og peningum og það er raunhæfur möguleiki að Thompson verði samningslaus næsta sumar,“ sagði Wojnarowski í NBA Countdown á ESPN. Thompson hefur myndað hryggjarstykkið í liði Golden State á blómaskeiði félagsins ásamt Stephen Curry, hinum Skvettubróðurnum, og Draymond Green. Saman hafa þeir fjórum sinnum orðið NBA-meistarar með Golden State. Á síðasta tímabili skoraði Thompson 21,9 stig að meðaltali í leik og var með 41,2 prósent þriggja stiga nýtingu. Hinn 33 ára Thompson er ein besta skytta í sögu NBA og er með 19,8 stig að meðaltali í leik og 41,6 prósent þriggja stiga nýtingu á ferlinum. Golden State vann 44 leiki í deildarkeppninni á síðasta tímabili og komst í undanúrslit Vesturdeildarinnar þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Los Angeles Lakers, 4-2. Thompson skoraði 18,5 stig að meðaltali í leik í úrslitakeppninni.
NBA Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Jorge Costa látinn Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Sjá meira