Það skásta og það versta sem gæti gerst fari að gjósa Jón Þór Stefánsson skrifar 11. nóvember 2023 19:50 „Hvort að það gýs þar, eða hvort það gýs norðar, eða hvort það gýs ekki neitt, það getum við ekki vitað. En „Líkurnar eru töluverðar og þess vegna hefur Grindavík verið lokað alveg. Það er ekki öruggt fyrir neinn að vera þar,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði. Vísir/Vilhelm Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, skoðaði verstu og skástu sviðsmyndirnar kæmi til goss á Reykjanesskaga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Í verstu sviðsmyndinni myndi hraun renna í Grindavíkurbæ.
Hann segir að á síðustu þrjátíu klukkutímum hafi myndast mikill kvikugangur og að líkur á gosi aukist þar sem gangurinn færist ofar. „Því lengur sem þetta heldur áfram því meiri líkur eru á að þetta endi með gosi. Það gæti gerst á næstu klukkutímum eða dögum, við vitum það ekki alveg,“ segir Magnús Tumi. Aðspurður um hvar líklegasta staðsetning eldgos sé að svo stöddu segir hann að kvikugangurinn hafi verið mestur í útjaðri Grindavíkur norðvestanverðri. „Hvort að það gýs þar, eða hvort það gýs norðar, eða hvort það gýs ekki neitt, það getum við ekki vitað. En líkurnar eru töluverðar og þess vegna hefur Grindavík verið lokað alveg. Það er ekki öruggt fyrir neinn að vera þar.“ Versta sviðsmyndin að mati Magnúsar væri stórt sprungugos, líkt þeim sem hafa orðið á síðustu árum, þar sem að hraun myndi fara yfir Grindavík. Þá sé möguleiki að gosið yrði töluvert stærra en þau sem hafa verið á Reykjanesskaga undanfarið. Skásta sviðsmyndin ef það verður gos, væri hins vegar að fá lítið gos norðan Sundhnjúka, í líkingu við fyrri gos, að mati Magnúsar Tuma. „Það er besta sviðsmyndin. Aðrar sviðsmyndir eru verri,“ segir hann. „Þetta verður bara að koma í ljós, en við verðum að vera viðbúin öllu.“
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Sjá meira