Botnliðið sótti mikilvæg stig norður Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. desember 2023 16:31 Einar Sverrisson var markahæstur Selfyssinga í dag með ellefu mörk. mynd/selfoss Selfoss, botnlið Olís-deildar karla í handbolta, vann afar mikilvægan tveggja marka sigur er liðið heimsótti KA norður á Akureyri í dag, 28-30.
Heimamenn í KA skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en eftir það voru Selfyssingar sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Gestirnir að sunnan náðu tveggja marka forystu í stöðunni 6-8 þegar fyrri hálfleikur var rétt rúmlega hálfnaður og liðið leiddi með þremur mörkum í hálfleik, staðan 12-15. Akureyringar skoruðu hins vegar fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og jöfnuðu metin. Selfyssingar lögðu þó ekki árar í bát og hrifsuðu forystuna til sín á ný með góðum kafla. Gestirnir litu aldrei um öxl eftir það og unnu að lokum mikilvægan tveggja marka sigur, 28-30. Einar Sverrisson var markahæsti maður vallarins með ellefu mörk fyrir Selfyssinga, en Vilius Rasimas átti einni stórleik í marki gestanna og varði 17 skot. Ott Varik var atkvæðamestur í liði heimamanna með níu mörk. Þrátt fyrir sigurinn sitja Selfyssingar enn á botni deildarinnar, nú með sex stig, aðeins einu stigi frá öruggu sæti. KA situr í sjöunda sæti með tíu stig.
Olís-deild karla UMF Selfoss KA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira