Snjókoma norðantil en lengst af þurrt og bjart fyrir sunnan Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2023 07:12 Á morgun verður áttin norðaustlæg. Myndin er frá Hvammstanga. Vísir/Vilhelm Úrkomusvæði gengur nú inn yfir norðanvert landið og fylgir því breytileg átt, yfirleitt vindur fimm til þrettán metrar á sekúndu og snjókoma með köflum.
Á vef Veðurstofunnar segir að á Suður- og Suðvesturlandi verði vindur hins vegar hægari og lengst af þurrt og bjart. Frost á landinu verður á bilinu fjögur til sautján stig og verður kaldast inn til landsins. „Á morgun verður áttin norðaustlæg, víða 8-15 m/s og él, en úrkomulítið suðaustantil. Dregur heldur úr frosti. Eftir hádegi bætir smám saman í vind. Á sunnudagsmorgun er útlit fyrir norðan hvassviðri eða storm norðvestantil á landinu með hríðarveðri, en mun hægari vindur í öðrum landshlutum. Síðdegis verður mesti krafturinn farinn úr norðanstrengnum, vindhraði verður þá yfirleitt á bilinu 10-18 m/s með snjókomu um landið norðanvert, en þurrt að kalla sunnan heiða,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (Þorláksmessa): Norðaustan og norðan 8-15 m/s og víða él, en úrkomulítið suðaustantil. Frost 1 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Hvessir norðvestanlands undir kvöld. Á sunnudag (aðfangadagur jóla): Norðan 18-25 norðvestantil um morguninn, annars mun hægari vindur. Snjókoma um landið norðanvert, en úrkomulítið sunnan heiða. Norðan 13-20 m/s seinnipartinn. Frost 0 til 8 stig. Á mánudag (jóladagur): Norðan og norðaustan 8-15 og él, en þurrt að kalla sunnanlands. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag (annar í jólum) og miðvikudag: Norðaustan 5-13 og allvíða líkur á éljum. Frost 1 til 10 stig. Á fimmtudag: Austlæg átt og dálítil snjókoma á víð og dreif, en bjartviðri á Vesturlandi. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Sjá meira