Efnið sem lak til rannsóknar en ekkert saknæmt átti sér stað Bjarki Sigurðsson skrifar 16. febrúar 2024 13:18 Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Akureyri. Vísir/Vilhelm Ekki er víst hvert efnið var sem lak á gólf Endurvinnslunnar við Furuvelli á Akureyri í gær. Lögreglan rannsakar málið en ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað.
Í gær sendi lögreglan á Norðurlandi eystra frá sér tilkynningu þar sem varað var við efnaleka við Furuvelli og voru íbúar á svæðinu beðnir um að halda sig innandyra og loka gluggum. Lekinn átti sér stað hjá Endurvinnslunni sem staðsett er við Furuvelli en Aðalsteinn Júlíusson, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri, segir í samtali við fréttastofu að efnið sé í rannsókn og niðurstöðum að vænta í næstu viku. „Við sofum alveg rólegir yfir þessu þannig, þetta gekk hratt yfir og við höldum að þetta hafi verið eitthvað algjört óhapp. Ekkert saknæmt á bak við þetta,“ segir Aðalsteinn. Gufur fór illa í starfsmenn Nokkrir starfsmenn Endurvinnslunnar kvörtuðu yfir sviða í augum og öndunarfærum eftir lekann en Aðalsteinn hefur ekki heyrt frá neinum þeirra hvort óþægindin hafi haldið áfram. „Um leið og þetta binst lofti eða vatni myndast einhverjar gufur sem fara illa í fólk,“ segir Aðalsteinn. Slökkviliðinu gekk vel að hreinsa efnið og var húsnæðið fljótlega talið öruggt. „Þetta voru meiri öryggisráðstafanir frekar en hitt á meðan það var verið að tryggja að efnið færi ekki út í holræsakerfið og eins hreinsa húsnæðið bara,“ segir Aðalsteinn.
Akureyri Lögreglumál Umhverfismál Slökkvilið Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Fleiri fréttir Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Sjá meira