Höfðu afskipti af barnaníðingi í Dalslaug Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. apríl 2024 17:43 Í bréfi sem var sent á forráðamenn barna í Ingunnarskóla kemur fram að lögregla hafi haft afskipti af dæmdum barnaníðingi í Dalslaug í Úlfarsárdal í dag. Facebook Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af dæmdum barnaníðingi í Dalslaug í Úlfarsárdal fyrr í dag. Maðurinn sótti laugina á skólatíma og var lögregla kölluð á vettvang.
Mbl greindi frá afskiptum lögreglu af manninum og hefur þar eftir bréfi sem sent var á forráðamenn barna í Ingunnarskóla. Fyrr í dag fjallaði Vísir um að Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla, hefði í pósti varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitaði í laugina. Í bréfinu kom fram að maðurinn spjallaði reglulega við drengi á skólatíma og að næst þegar hann kæmi í hús yrði hann kallaður inn til forstöðumanns, ásamt skólastjórnanda og kallað yrði á lögregluna. Mbl greinir frá því að eftir að fyrra bréfið var sent á forráðamenn Dalskóla hafi annað bréf verið sent á foreldra barna í Ingunnarskóla. Þar var greint frá því að maðurinn hefði farið í laugina á skólatíma, áðurnefnt verkferli hefði verið virkjað, lögreglan verið kölluð til og haft afskipti af honum. Samkvæmt heimildum fréttastofu á maðurinn að baki tvo fangelsisdóma. Annars vegar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum unglingsdreng og hins vegar fyrir að hafa í fórum sínum gríðarlega mikið magn barnaníðsefnis. Annar dómurinn var á þriðja ár í fangelsi og hitt á fjórða ár.
Lögreglumál Skóla - og menntamál Reykjavík Sundlaugar Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Fleiri fréttir Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Sjá meira