Opið bréf til matvælaráðherra - dýraníð í Borgarbyggð Árni Stefán Árnason skrifar 16. apríl 2024 11:31 Sæl Bjarkey. Ég ætla að brjóta þá hefð í ávarpi til nýs ráðherra að óska þér til hamingju með stólinn. - Ég mun hins vegar hvergi draga af þeim árnaðaróskum þá er þú hefur virkjað aðgerðir í því sem nú verður fjallað um, já ekki bara það heldur alvöru opinbera íslenska dýravernd skv. lögum um velferð dýra! Framkvæmd dýraverndar á Íslandi er nefnilega meira og minna í molum af hálfu framkvæmdavaldsins. Hún er seinvirk þegar hún virkar sem hefur þá afleiðingu að skyni gæddar lífverur þurfa að þjást fyrir almanna augum. Hjálparskyldan er skýr í 7. gr. laga um velferð dýra. Ákvæðinu eru ekki hlýtt, sem hefur leitt til borgaralegrar óhlýðni og dýrum komið til bjargar. Af því hef m.a. ég skaðlausa reynslu, er stoltur af þegar langlundargeð mitt þrýtur. Þú lýstir þig tilbúna til að taka stól ráðherra áður en Bjarna Ben tókst að möndla saman ríkisstjórn. Sú yfirlýsing merkir að þú teljir þig vel að í þeim málaflokkum, sem líklegir væru að féllu í skaut nýs VG ráðherra. En er það svo? Ég hef legið yfir dýravernd í rúman áratug, nánast á hverjum degi og veit að það ár sem þú átt vonandi eftir í ráðherrastól mun kalla á yfirgripsmikla þekkingu á málaflokknum, þ.e. ef þú hefur áhuga á ella verður lítils af þér að vænta í þágu dýranna á Íslandi. - Ég efa reyndar að árið muni duga þér til að setja þig inn í allar hliðar íslenskrar dýraverndar en þú hefur jú altént herskara aðstoðarmanna í mikilvægu ráðuneyti þínu. Nú ert þú, semsagt tekin við matvælaráðuneytinu og þar með orðin æðsti valdhafi dýraverndar á Íslandi. Í því felst gríðarlega ábyrgð. Þú ert orðin talsmaður dýra á Íslandi, umboðsmaður þeirra gagnvart öllum aðgerðum sem eiga að tryggja velferð þeirra. Á minnisvarða í Alþingisgarðinum stendur ritað ,,ef dýrin mættu mæla, þá mundi verða blessað nafnið þitt" Farðu nú fyrir eða eftir næsta þingfund og rannsakaðu þetta sjálf og kynntu þér manninn sem þetta er ritað um. Hann var einu sinni óbreyttur þingmaður eins og þú varst fyrir nokkrum dögum. Kom miklu meiru í verk heldur en nokkur annar þingmaður hingað til og eitt er víst, hann hefði sjálfur farið upp á Höfða og afstýrt því dýraníði sem nú á sér stað á þinni vakt en allir þingmenn virðast of fínir til að takast á við. Þegar mælt var fyrir lögum um velferð dýra sagði sá VG ráðherra, sem þá sat í þínum stól: aldrei framar afsláttur af dýravernd á Íslandi. Í dag er staðan sú að dýravernd hins opinbera er að mestu leyti með allt niður um sig, um það hefur Ríkisendurskoðandi skrifað skýrslu. Ég var reyndar áratug á undan honum með nánast sömu yfirlýsingu í meistararitgerð í lögfræði - Hin leynda þjáning búfjár á Íslandi - um réttaráhrif og framkvæmd dýraverndarlaga á Íslandi. Nú hefur þú móttekið marga tölvupósta frá Steinunni Árnadóttur, dýraverndarsinna um meint dýraníð að Höfða í Borgarbyggð. Ég er á þeim póstlista. Þú svarar engum póstum, frekar en 62 aðrir þingmenn. Einn hefur tjáð sig. Til hvers ertu að gefa kost á tölvupóstsambandi ef þú nennir ekki að svara slíkum erindum. Ég hafna þeirri útskýringu að erindin séu svo mörg, það er fyrirsláttur, ókurteisi og lítilvirðing við þá sem láta sig níðið varða. Ég segi bara: það er naumast þið ráherrar og lægra sett stjórnvöld takið ykkur hátíðlega. Þú stígur inn í þetta embætti vitandi um dýraníðið á Höfða, um það hefur mikilvægir miðlar fjallað í langan tíma. Hvað hefur þú gert til að útrýma því og af hverju getur þú ekki stigið fram, þó það væri bara til þess eins að róa dýraverndarsinna með mögulegum tíðindum um að ám og lömbum sé búið eða verið að bjarga. Hverslags þöggun er í gangi í þinni brú og smitar sig niður alla Matvælastofnun. Það hefur engin áhuga á því að vita hver er umráðamaður þessara dýra í neyð og því skipta persónuverndarsjónarmið zeró máli gagnvart upplýsingastreymi til almennings en það er algengt ella hjá hinni umdeildu lagadeild í MAST apparatinu, sem hefur fengið viðurnefnið erlendis: stærsta klíka á Íslandi - gagnslaus í dýravernd. Það er að miklu leyti barasta hreinlega rétt Bjarkey. Nú krefst ég þess, sem launagreiðandi þinn, og þar sem engin merkileg og aðkallandi mál, að frátöldu búvörulagaklúðrinu og hvalamálinu eru á dagskrá hjá þér varðandi málaflokkinn dýravernd, að þú bregðist við. Og eitt að lokum. Ég tel mig vera vel gjaldgengann í sæti matvælaráðherra með mína menntun og all hokinn af lífsreynslu í dýravernd í áratugi. Sæti ég í þínu sæti væri ég löngu búinn að beina því til setts yfirdýralæknis, Þorvaldar H. Þórðarsona, með 2ja mínútna símtali, að Höfðaníðinu yrði útrýmt samdægurs og að hann fengi þau fyrirmæli að ær og lömb þeirra fengju að njóta réttarstöðu sinnar skv. lögum um velferð dýra. Það er lágmarkskrafa, sem ég geri nú til þín. Það eru auk þess lágmarksreglur skv. lögum um velferð dýra. Það er akkúrat ekkert þessu til fyrirstöðu að lögum. Það sem virðist þessu til fyrirstöðu er að stjórnvöld virðast hreinlega vera löt og áhugalaus. Góðar stundir. Höfundur er dýraverndalögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Dýraheilbrigði Borgarbyggð Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun