Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Árni Sæberg skrifar 28. maí 2024 17:20 Arna er fyrir miðju á myndinni, við hlið Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár.
Landsréttur kvað upp úrskurð í máli Örnu þann 22. maí en birti hann í dag. Úrskurðurinn er nokkuð mikið yfirstrikaður en af málsatvikum er ljóst að um mál Örnu er að ræða. Taka tvö Í úrskurðinum segir að Arna hafi krafist þess með bréfi þann 19. febrúar síðastliðinn að rannsókn Héraðssaksóknara, hvaða hana varðar, á ætlaðri mútustarfsemi starfsmanna og stjórnenda Samherja yrði hætt. Hún hafi byggt kröfuna á því að Héraðssaksóknari hefði ítrekað og með alvarlegum hætti brotið gegn hlutlægniskyldu sinni og að óhæfilegur dráttur hafi orðið á henni. Arna reyndi einnig að fá rannsóknina fellda niður í fyrra en hafði ekki erindi sem erfiði. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings síðan í júní árið 2020. Bróðir dómara grunaður í máli þar sem Arna var brotaþoli Í úrskurðinum segir að í kröfu Örnu um frávísun í seinna skiptið hafi hún byggt á því að Héraðssaksóknari hafi við meðferð Samherjamálsins leynt aðkomu embættisins að rannsókn á máli lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna ætlaðra brota tiltekinna fjölmiðlamanna gagnvart henni og samstarfsmanni hennar. Arna hafi réttarstöðu brotaþola í því máli. Þar er vísað til rannsóknar á meintri byrlun og símastuldi af Páli Steingrímssyni skipstjóra. Sú rannsókn er í pækli fyrir norðan. Hún hafi teflt því fram að Héraðssaksóknari hafi við fyrri málsmeðferð fullyrt að embættið hefði ekki haft neina aðkomu að því máli sem lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra rannsakar. Arna vísi í málatilbúnaði sínum til nýrra gagna sem sýni að starfsmaður Héraðssaksóknara hafi komið að rannsókn þess máls. Þá liggi nú fyrir að bróðir Finns Þórs Vilhjálmssonar, héraðsdómara og áður saksóknara, hafi haft réttarstöðu grunaðs manns við rannsókn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra allt frá árinu 2021. Finnur Þór er bróðir Inga Freys Vilhjálmssonar blaðamanns. Arna byggi á því að þar sem bróðir Finns Þórs hafi réttarstöðu grunaðs manns í máli þar sem hún sé brotaþoli og að það mál hafi tengsl við málefni Samherja hafi Finnur Þór verið vanhæfur til meðferðar máls hennar hjá Héraðssaksóknara. Annar dómari skráður sem ákærandi Í úrskurðinum segir fyrir liggi að tveir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur hafi verið saksóknarar hjá embætti Héraðssaksóknara um langt árabil áður en þeir voru skipaðir dómarar. Það eru áðurnefndur Finnur Þór og Björn Þorvaldsson. Svo sem rakið sé í hinum kærða úrskurði héraðsdóms muni Björn hafa verið tilgreindur ábyrgur ákærandi við rannsókn í málinu en eftir að hann lét af störfum hafi Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sjálfur verið tilgreindur sem slíkur. Fyrir liggi að Finnur Þór hafi haft aðkomu að rannsókn málsins hjá Héraðssaksóknara á meðan hann starfaði þar, meðal annars verið í samskiptum við Örnu, verið í forsvari fyrir embættið gagnvart dómstólum og í samskiptum við erlend stjórnvöld. Allir samdómarar líka vanhæfir Í úrskurðinum segir að Arna hafi byggt kröfu sína, um að allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur víki sæti við meðferð kröfu hennar um niðurfellingu, á því að tveir dómarar við dómstólinn hefðu í fyrri störfum sínum við embætti héraðssaksóknara haft mjög ríka aðkomu að rannsókn málsins þegar þeir störfuðu þar sem saksóknarar. Því yrðu samdómarar þeirra settir í þá stöðu að dæma um fyrri störf þeirra og eftir atvikum leggja mat á framburð þeirra fyrir dómi og því hefði dómstólinn ekki þá ásýnd hlutleysis sem nauðsynleg væri. Héraðssaksóknari hafi byggt á því að ekkert sem varðaði aðkomu viðkomandi dómara að rannsókn málsins hefði leitt til þess að aðrir dómar við Héraðsdóm væru vanhæfir til að leysa úr ágreiningi málsins. Í úrskurði Landsréttar var að koma dómarana tveggja að rannsókn málsins talin til þess fallin að draga mætti óhlutdrægni annarra dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur með réttu í efa. Vísað var til þess í úrskurðinum að þar sem málatilbúnaður Örnu tengdist störfum dómaranna tveggja við rannsókn málsins og að ekki væri unnt að útiloka að við efnislega úrlausn málsins þyrftu dómarar að leggja mat á lögmæti verka sem dómarnir tveir önnuðust við rannsóknina. Við Héraðsdóm Reykjavíkur starfi 24 dómarar og þó að þeir starfi almennt einir í dómi sé nokkuð algengt að þeir sitji í dómi með öðrum dómurum. Því hafi öllum dómurum við Héraðsdóm Reykjavíkur verið gert að víkja sæti í málinu. Úrskurð Landsréttar má lesa hér.
Samherjaskjölin Byrlunar- og símastuldarmálið Dómsmál Lögreglumál Dómstólar Mest lesið Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Innlent Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Erlent Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Innlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Innlent Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Erlent Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Erlent Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Innlent „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Innlent Fleiri fréttir Ekki meiðyrði hjá RÚV að lýsa yfirlýsingum Elds Smára réttilega Georgíumaður hafi kvænst Letta til þess að fá dvalarleyfi Eldur í bíl á Hellisheiði Líklegra að það gjósi nær áramótum Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Vélfag kvartar til ESA og ræður kanónu „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Álftin fæli bændur frá kornrækt Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Húsnæðismálin í brennidepli og Alvotech lækkar á mörkuðum Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Viðreisn stillir upp á lista í Mosfellsbæ Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tekur upp nýtt nafn Foreldrar langveikra barna einangruð og endi jafnvel sem öryrkjar Vilja rýmri reglur um veiðar fjögurra fuglategunda Tvö pör handtekin og afskipti höfð af tvímenningum Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Kynlífsverkafólk í Norræna húsinu og tölvuspilandi eldri borgarar Moskítóflugan lifði kuldakastið af „Þorsti í auglýsingafé er talsverður hjá Ríkisútvarpinu“ Hætta á að ákveðnir staðir þrífist ekki Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Þúsundir hafi orðið af milljónum Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Dökk mynd í byggingariðnaði, umsvif RÚV og fækkun fjár Losun gróðurhúsalofttegunda jókst í Reykjavík Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Sjá meira