Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. nóvember 2024 14:05 Valgerður hvetur atvinnurekendur til þess að svara öllum starfsumsóknum. Svörin þurfi ekki að vera ítarleg en geri heilmikið fyrir fólk í atvinnuleit. Vísir Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun segir mörg dæmi þess að fólk í atvinnuleit fái engin svör við umsóknum sínum. Sérfræðingurinn biðlar til atvinnurekenda um að svara, stór hluti atvinnuleitenda greini nú frá því að atvinnuleitin sé orðin þeim ansi þungbær.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein á Vísi. Valgerður Rut Jakobsdóttir sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun lýsir því þar að í starfi sínu hjá stofnuninni hitti hún reglulega fólk sem sé í atvinnuleit. Margvíslegar ástæður séu þar að baki, sumir misst starf sitt óvænt, aðrir í tímabundinni stöðu eða ákveðið að leita á ný mið og svo séu þeir sem aldrei hafi áður unnið á íslenskum vinnumarkaði en vilji gjarnan komast í starf sem allra fyrst. Manneskja með vonir á bakvið hverja einustu umsókn Valgerður bendir á að það sé fyrirtækjum og vinnuveitendum í hag að fólk í atvinnuleit sæki um starf hjá þeim. Það hljóti að vera eftirsóknarvert að hafa úr allskonar umsækjendum að velja. „Mikilvægt að hafa alltaf í huga að á bak við hverja og eina starfsumsókn er manneskja sem hefur lagt vinnu og hugsun í sína atvinnuumsókn. Það felst ákveðin berskjöldun í því að treysta fólki fyrir sínum persónulegu upplýsingum og eftir að umsóknin er lögð inn hefst ákveðið tímabil vonar og væntinga hjá fólki.“ Atvinnuleysi eitt og sér geti haft mikil áhrif á sjálfstraustið, sem geti farið dvínandi eftir því sem líði á og ekkert breytist. Þetta geti hent hvern sem er, atvinnuleysið spyrji ekki um stöðu, menntun né starfsreynslu. Umsóknir geti verið allskonar „Reynsla mín eftir fjöldann allan af viðtölum við fólk er sú að margir greina frá því að atvinnuleitin sé orðin þeim ansi þungbær, og stór hluti ástæðunnar sé skortur á viðbrögðum atvinnurekenda við starfsumsóknum þeirra. Fólk greinir frá vonleysi og eins og gefur að skilja getur þetta haft í för með sér mikla höfnunartilfinningu.“ Valgerður segist því biðla til atvinnurekenda um að taka þetta til umhugsunar og svara öllum atvinnuumsóknum sem þeim berast. Umsóknirnar geti verið allskonar, með eða án ferilskrár, með góðum og ekki jafn góðum ferilskrám, á íslensku eða ensku og lengi mætti telja. „Það sem er sammerkt með þessum umsóknum er manneskjan á bakvið þær, sem bíður og vonast eftir svari. Svarið þarf ekki að vera ítarlegt, en það er hægt að semja staðlað svar sem hægt er að nota að hverju sinni. Í svarinu væri fólk upplýst um að umsókn sé móttekin og þeim í leiðinni þakkað fyrir sýndan áhuga á því að starfa hjá fyrirtækinu. Einnig kæmi fram hver staða fyrirtækisins væri, hvort ekki sé verið að ráða inn að svo stöddu eða að ráðning hafi nú þegar átt sér stað. Svörin þjóna ákveðnum tilgangi, að gefa væntingum og voninni svör, þrátt fyrir að svarið hafi ekki verið „já, þú fékkst starfið.“
Vinnumarkaður Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira