Hituðu upp fyrir Liverpool með því að ná Man. City að stigum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2025 21:54 Bruno Guimaraes fagnar sigurmarki sinu í kvöld með Joelinton. AP/Zac Goodwin Newcastle komst í kvöld upp að hlið Manchester City í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 1-0 útisigur á West Ham.
Newcastle fagnaði því sigri í Lundúnum en liðið mætir aftur til höfuðborgarinnar um næstu helgi þegar fram er úrslitaleikur Liverpool og Newcastle um enska deildabikarinn. Bruno Guimaraes tryggði Newcastle öll stigin í kvöld þegar hann skoraði af stuttu færi eftir flotta sendingu Harvey Barnes á 63. mínútu. Þetta var þriðja deildarmark Guimaraes á leiktíðinni en hann skoraði einnig í sigri á Leicester í desember og í tapi á móti Bournemouth í janúar. Newcastle var sterkara liðið á móti bitlausu West Ham liði og þetta var sanngjarn sigur Newcastle manna þrátt fyrir engan stórleik hjá þeim. Þetta var líka risasigur í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en fimm efstu sætin gefa væntanlega sæti þangað. Þetta var auk þess lífsnauðsynlegur sigur enda aðeins annar deildarsigur Newcastle í síðustu fimm leikjum. Newcastle fór upp í sjötta sætið en komst ekki ofar þrátt fyrir að vera með jafnmörg stig og Manchester City þar sem City er með mun betri markatölu. West Ham var búið að vinna tvo leiki í röð og gat komist upp fyrir Manchester United, Tottenham og Everton með sigri. Það tókst ekki og West Ham er áfram í sextánda sætinu.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira