Argentína rústaði Brasilíu og er komin á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2025 09:31 Argentínumenn fagna sigrinum á Brasilíumönnum og sætinu á HM 2026. getty/Marcelo Endelli Heimsmeistarar Argentínu rústuðu Brasilíu, 4-1, í undankeppni HM 2026 í nótt. Argentínumenn eru komnir á HM þarnæsta sumar á meðan vandræði Brasilíumanna halda áfram.
Þrátt fyrir að Lionel Messi og Lautaro Martínez hafi verið fjarri góðu gamni átti argentínska liðið ekki í neinum vandræðum gegn því brasilíska. Sigur Argentínu er sá stærsti á Brasilíu síðan 1964. Leikurinn var aðeins fjögurra mínútna gamall þegar Julián Alvarez kom Argentínu yfir. Átta mínútum síðar tvöfaldaði Enzo Fernández forskot heimamanna. Á 26. mínútu minnkaði Matheus Cunha muninn í 2-1 eftir slæm varnarmistök Cristians Romero. Ellefu mínútum síðar jók Alexis Mac Allister muninn aftur í tvö mörk og á 71. mínútu gulltryggði Giuliano Simeone sigur Argentínu með sínu fyrsta landsliðsmarki. Eftir markalaust jafntefli Úrúgvæ og Bólivíu fyrr um daginn var ljóst að Argentína var örugg með sæti á HM 2026. Liðið er í efsta sæti Suður-Ameríkuriðilsins með 31 stig eftir fjórtán leiki. Á meðan er Brasilía í 4. sæti með 21 stig og pressan á þjálfaranum Dorival Júnior er talsverð. Brassar hafa aðeins unnið sjö af sextán leikjum undir hans stjórn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Loksins þorði einhver í Kolbein sem stígur aftur inn í hringinn Sport Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Enski boltinn „Búnt á skenkinn, Halli Egils á vegginn“ Sport Skagamenn senda Kanann heim Körfubolti Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Enski boltinn Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Enski boltinn Fleiri fréttir Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Daníel Leó hetjan í dramatískum sigri Ísak Bergmann og félagar nálgast Evrópusæti Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Kristian Nökkvi skoraði í Íslendingaslagnum Arna og Sædís nánast öruggar með silfrið Bölvun fylgir úrslitaleik Meistaradeildarinnar Hólmbert skoraði í Suður-Kóreu og stjórnaði sigursöngvum eftir leik Leggur til breytingar og vill að fótboltinn læri af handboltanum Úlfarnir ráku Pereira Patrick Vieira ekki lengur þjálfari Mikaels Egils Mark frá Messi kom ekki í veg fyrir oddaleik Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Skoraði fyrsta markið sama dag og hann flutti í þriðja sinn á þremur mánuðum Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Sjá meira