„Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2025 23:33 Erling Haaland meiddist um helgina og verður frá í fimm til sjö vikur. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Erling Haaland verður frá vegna meiðsla í fimm til sjö vikur. Þjálfarinn Pep Guardiola vonar að hann verði tilbúinn til átaka fyrir síðustu leiki tímabilsins á Englandi og fyrir HM félagsliða sem fer fram í sumar.
Haaland meiddist á ökkla og var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik í 2-1 sigri City gegn Bournemouth í átta liða úrslitum FA bikarsins um helgina. Haaland skoraði jöfnunarmark City, eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu. Hann sást síðan yfirgefa Etihad haltrandi á hækjum. „Læknarnir segja mér að hann verði frá í fimm til sjö vikur. Þannig að hann verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins og fyrir HM félagsliða“ sagði Guardiola. FA bikarinn og HM félagsliða í sumar eru einu möguleikar City á titli eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeildinni og deildabikarnum og dróst aftur úr titilbaráttunni í úrvalsdeildinni. Ef miðað er við fimm vikna meiðsli mun Haaland snúa aftur í deildarleik gegn Southampton þann 10. maí og vera orðinn klár fyrir úrslitaleik FA bikarsins þann 17. maí. Að því gefnu að City vinni Forest í undanúrslitum og komist þangað. Ef miðað er við sjö vikna meiðsli mun það standa mjög tæpt, úrslitaleikurinn fer fram akkúrat sjö vikum eftir að Haaland varð fyrir meiðslunum um helgina. Haaland ætti þó að vera orðinn leikhæfur fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 25. maí. HM félagsliða hefst svo þann 14. júní.
Enski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Íslenski boltinn Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjá meira