LeBron um framtíðina: „Hef ekki svar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. maí 2025 12:18 LeBron James var að ljúka sínu 22. tímabili í NBA. Hann er stigahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. getty/Jon Putman Eftir að Los Angeles Lakers féll úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt var LeBron James spurður út í framtíð sína. Þessi fertugi leikmaður var að klára sitt 22. tímabil í NBA.
LeBron skoraði 22 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar þegar Lakers tapaði fyrir Minnesota Timberwolves í nótt, 96-103. Lakers tapaði einvíginu, 4-1. Aðspurður um framtíð sína eftir leik sagðist LeBron ekki vera búinn að ákveða næstu skref. „Ég hef ekki svar. Þetta er eitthvað sem ég mun setjast yfir með konunni minni og stuðningshópnum og ræða um og sjá hvað gerist. Bara velta því fyrir mér hversu lengi ég vil halda áfram að spila. Ég er ekki með svarið núna ef ég á að vera heiðarlegur,“ sagði LeBron á blaðamannafundi. „Það er undir mér komið ef ég held áfram að spila og hversu lengi. Það er mín ákvörðun og hefur ekkert með aðra að gera.“ Flestir búast við því að LeBron haldi ótrauður áfram. Sonur hans, Bronny, spilar með Lakers og þá fékk liðið stórstjörnuna Luka Doncic í vetur. LeBron skoraði 24,4 stig, tók 7,8 fráköst og gaf 8,2 stoðsendingar að meðaltali í leik á þessu tímabili. Lakers endaði í 3. sæti Vesturdeildarinnar. LeBron kom til Lakers fyrir sjö árum. Hann varð meistari með liðinu 2020.
NBA Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn Littler segist vera betri íþróttamaður en Yamal Fótbolti Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fótbolti „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Íslenski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Kjartan Kári á leiðinni í Víking Íslenski boltinn „Það er skellur“ Íslenski boltinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Enski boltinn Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjá meira