Handbolti

Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta lands­leiknum

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Ingi Magnússon er mættur aftur í íslenska landsliðið eftir meiðslin sem héldu honum meðal annars frá HM í janúar.
Ómar Ingi Magnússon er mættur aftur í íslenska landsliðið eftir meiðslin sem héldu honum meðal annars frá HM í janúar. vísir/Anton

Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Bosníu ytra í kvöld, klukkan 18 að íslenskum tíma, í næstsíðasta leik Íslands í undankeppni EM.

Snorri hafði valið nítján leikmenn í leikina við Bosníu og við Georgíu í Laugardalshöll á sunnudaginn. Markvörðurinn Ísak Steinsson ferðaðist þó ekki með út til Bosníu en gæti spilað gegn Georgíu.

Ein breyting varð svo á hópnum þegar Stiven Valencia meiddist og kom Bjarki Már Elísson inn í hans stað.

Aðeins sextán leikmenn mega vera á leikskýrslu hverju sinni og því sitja tveir leikmenn hjá í kvöld. Það eru þeir Andri Már Rúnarsson úr Leipzig og nýliðinn Reynir Þór Stefánsson úr Fram sem gæti því mögulega spilað fyrsta A-landsleik sinn í Höllinni á sunnudaginn.

Ísland hefur þegar tryggt sér sæti á EM 2026 og spilar þar í riðli í Kristianstad í Svíþjóð. Ísland er með átta stig í sínum undanriðli, eða fullt hús stiga, en Georgía er með fjögur stig og Bosnía og Grikkland tvö stig hvort. Leikurinn í kvöld er því afar mikilvægur fyrir Bosníu en skiptir ekki jafnmiklu máli fyrir strákana okkar.

Hópurinn gegn Bosníu í kvöld:

Markmenn:

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (283/26)

Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock (68/2)

Aðrir leikmenn :

Arnar Freyr Arnarsson, SC Melsungen (101/105)

Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (21/7)

Elvar Örn Jónsson, SC Melsungen (87/198)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (70/154)

Haukur Þrastarson, Dinamo Bucaresti (43/62)

Janus Daði Smárason, Pick Szeged (96/170)

Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg Arhus (35/69)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (52/156)

Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg (88/317)

Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (26/78)

Stiven Tobar Valencia, Benfica (20/23)

Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (15/26)

Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (67/206)

Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (102/46)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×