Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Kjartan Kjartansson skrifar 23. maí 2025 13:48 Apple ætlar að halda áfram að framleiða Iphone í Asíu þrátt fyrir innflutningstolla núverandi Bandaríkjastjórnar á Kína og fleiri ríki. AP/Hau Dinh Bandaríkjaforseti hótaði því að leggja fimmtíu prósent innflutningstoll á vörur frá Evrópusambandinu og 25 prósent toll á Apple-vörur í samfélagsmiðlafærslum í dag. Hann segir hvorki ganga né reka í viðræðum við ESB um viðskipti.
Yfirlýsingarnar í dag eru enn einn viðsnúningurinn á stefnu Bandaríkjastjórnar frá því að hún lagði fyrst háa innflutningstolla á flest ríki heims í vor. Hún lagði tuttugu prósent tolla á vörur frá Evrópusambandinu frá 2. apríl en lækkaði þá um helming fram til 8. júlí til þess að viðræður gætu átt sér stað á milli evrópskra og bandarískra ráðamanna. Tollar á evrópskt stál, ál og varahluti í bíla námu hins vegar 25 prósentum. Nú vill bandaríski forsetinn meina að þessar viðræður hafi ekki skilað neinum árangri og því ætli hann að „leggja til“ að fimmtíu prósent tollar taki gildi eftir rúma viku, 1. júní. Endurtók hann gamlar ásakanir sínar um að Evrópusambandið hefði verið stofnað til þess að klekkja á Bandaríkjunum. Þá hótaði forsetinn því að leggja 25 prósent toll á Apple-vörur sem eru framleiddar utan Bandaríkjanna. Það virðast viðbrögð við ákvörðun tæknirisans um að halda framleiðslu á Iphone-símum sínum áfram í Asíu.
Bandaríkin Evrópusambandið Skattar og tollar Donald Trump Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira