Mennirnir enn í haldi lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júlí 2025 12:03 Lögregla girti svæðið af. Vísir/Viktor Freyr Fimm karlmenn voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu eftir að skoti var hleypt af á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Allir eru enn í haldi lögreglu en enginn slasaðist.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð út rétt eftir klukkan ellefu í gærkvöldi eftir að lögreglu barst tilkynning um að hleypt hafi verið af skotvopni á hótelherbergi lúxushótelsins Svörtu Perlunni í miðborg Reykjavíkur. „Einn var handtekinn á staðnum og í framhaldinu fjórir til viðbótar, bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Við rannsókn á vettvangi mátti sjá ummerki þess að hleypt var af skotvopni, auk þess sem skotvopn fundust á staðnum,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Enginn slasaðist er skotvopninu var hleypt af. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, staðfestir í samtali við fréttastofu að fimm karlmenn hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og skotvopnið handlagt af lögreglu. Allir fimm eru enn í haldi lögreglu og er málið komið á borð miðlægrar rannsóknardeildar. Skýrslutaka fer fram í dag. Fréttastofu barst myndband af því er sérsveitin leiddi einn mann út í járnum með handklæði yfir höfðinu. Talsverður viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og herma heimildir fréttastofu að íbúar og viðskiptavinir veitingastaða í grennd við hótelið hafi verið beðnir um að halda sig innandyra á meðan aðgerðin stóð yfir.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira