„Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. ágúst 2025 15:10 Kabarett fjöllistahús opnar senn í Bankastræti. Vísir Kraftbar og veitingahús opnar senn í sögufrægu næturlífshúsnæði við Bankastræti fimm. Staðurinn, sem ber nafnið Kabarett, er í senn fjöllistahús og vettvangur fyrir hinar ýmsu listir.
Bræðurnir Sverrir og Sigurjón Garðarssynir standa að baki nýja staðnum. Í samtali við fréttastofu segir Sverrir hugmyndina hafa sprottið hjá bróður sínum, sem á hlut í brugghúsinu Hella bjór, sem bruggar meðal annars mjöð. „Það var svo mikil eftirspurn eftir að fá mjöðinn á krana en brugghúsið er á Hellu og hann var hvergi í boði í Reykjavík á krana. Þannig að þetta var hans andsvar við því, hann ákvað að vera með sinn eigin stað, með sinn eigin mjöð,“ segir Sverrir. Loka á miðnætti Auk mjaðarins verða tuttugu bjórtegundir á krana til sölu á Kabarett. Bjórarnir eru að sögn Sverris allir frá minni brugghúsum. „Við erum ekki samningsbundnir við hvorki Ölgerð né Coca Cola, þannig að við stjórnum alveg sjálfir hvað verður í boði á barnum. Ekkert Víking eða Gull neitt.“ Pride-fánum var komið fyrir í gluggum nýja staðarins í tilefni dagsins. Aðsend Sverrir segir þá bræður hafa fyrst sýnt húsnæðinu áhuga í fyrra en leigusalinn verið efins eftir hina ýmsu atburði sem hafa gengið á í húsnæðinu undanfarin ár. Má þar nefna hnífstunguárás í staðnum Bankastræti Club, sem var og hét, í lok árs 2022. Í ár hafi eigandi húsnæðisins þó fallist á tilboð þeirra. Til að byrja með verður staðurinn opinn mun skemur en margir aðrir vínveitingastaðir, til miðnættis. „Það verður lokað snemma en það kemur vonandi ekki að sök,“ segir Sverrir. Sverrir segir undirbúning í fullum gangi. Aðsend Auk bjórs og mjaðar verður hægt að panta sér hamborgara, kjúklingavængi og annað barsnakk á staðnum. Þá er staðurinn, líkt og fyrr segir, fjöllistahús. Bræðurnir hafa byggt svið inni á staðnum sem er hugsað fyrir hvers kyns listir. „Þetta svið er fyrir hvaða list sem er, hvort sem það er tónlist, uppistand, open mic kvöld, ljóðakvöld, bara hvað sem er. Við ætlum ekki að mismuna neinum í þeim efnum,“ segir Sverrir, sem reiknar með að opna dyrnar að Kabarett í september. Ekki gengið áfallalaust fyrir sig Bankastræti 5 hefur spilað stórt hlutverk í íslensku næturlífi frá því að skemmtistaðurinn B5 var rekinn í húsnæðinu. Í kórónuveirufaraldrinum lögðu eigendur staðarins upp laupana og World Class erfinginn Birgitta Líf Björnsdóttir tók við lyklunum að húsnæðinu. Staðurinn hlaut þá nýtt nafn, Bankastræti Club, og opnaði sumarið 2021. Bankastræti Club var rekinn til sumars 2023. Í millitíðinni var áðurnefnd stunguárás framin á staðnum, þegar hópur grímuklæddra manna æddi inn á staðinn, réðst að tveimur og stakk. Málið varð eitt fjölmennasta dómsmál Íslandssögunnar, en athygli vakti að réttarhöld í málinu fóru fram í veislusal í Gullhömrum. Eftir að Bankastræti Club ævintýrinu lauk tók viðskiptamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson við lyklunum með þá hugmynd að opna gamla góða B5 í upprunalegri mynd. Það gekk ekki betur en svo að lögbann var lagt við notkun vörumerkisins B5 við reksturinn, þar sem vörumerkið væri í eigu KG ehf. Sverrir Einar greip þá til þess ráðs að fjarlægja fimmuna í nafninu þannig að staðurinn hét um stund einungis B. Í maí í fyrra greindi Sverrir síðan frá því að staðnum yrði lokað fyrir fullt og allt og hann ætlaði að einbeita sér að skemmtistaðnum Exit, einnig í hans eig, af fullum þunga. Síðan þá hefur húsnæðið að stærstum hluta staðið autt, fyrir utan þegar Framsóknarflokkurinn opnaði þar kosningamiðstöð unga fólksins, „XB5“. Athygli vakti þó að ungum Framsóknarmönnum hafði láðst að sækja um vínveitingaleyfi, og því var einungis boðið upp á snakk og gos í rými sem óhætt er að segja að flestir tengi við bjórdrykkju. Hvort bjórleysið hafi haft áhrif á gengi flokksins í kosningunum skal látið liggja milli hluta.
Veitingastaðir Tónlist Næturlíf Hnífstunguárás á Bankastræti Club Reykjavík Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira