Handbolti

Reif gjallar­hornið úr höndum stuðnings­manns eftir fúkyrðaflaum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Daling í treyju númer 24.
Daling í treyju númer 24. Norsk Topphåndball/TV2

Norski handboltamaðurinn Nicolai Daling missti sig algjörlega þegar áhorfendur með gjallarhorn létu ófögur orð í hans garð falla. Stökk hann upp í stúku og grýtti gjallarhorninu í gólfið.

Hinn 23 ára gamli Daling, leikur með Bergen, og mætti Follio í 1. umferð efstu deildar Noregs á sunnudaginn var. Það var skammt til hálfleiks þegar leikmaðurinn missti algjörlega stjórn á skapi sínu.

Atvikið má sjá í myndbandinu hér að ofan þar sem hann sést rífa í gjallarhornið og grýta því inn á völlinn. Hann ræddi atvikið stuttlega eftir leik og var greinilega ekki búinn að ná sér niður.

„Ég ætla ekki að tjá mig um atvikið en þessi skítaklúbbur þarf að díla betur við það sem stuðningsmenn þeirra eru að öskra.“

Dómari leiksins staðfestir að Daling hafi kvartað yfir síendurteknum munnsöfnuði frá stuðningsmönnum heimaliðsins. Dómarinn segir ummæli stuðningsmanna ekki eiga heima í íþróttum og að þau hafa farið langt yfir strikið.

Norski miðillinn TV2 segir að Daling hafi verið kallaður viðundur eða skrípi (e. freak), þá voru ummæli látin falla er varða útlit hans sem og hlutverk hans í Bergen-liðinu.

Frederik Tönne, þjálfari Bergen, sagði jafnframt að Daling væri langt niðri eftir leikinn og hafi bara viljað fara heim. Hann gagnrýndi jafnframt Follo fyrir að taka ekki á málunum og búa til heilbrigðari kúltúr í stúkunni hjá sér.

Axla ekki ábyrgð

Folli virðist ekki ætla að axla ábyrgð á málinu. Segist Lukas Karlsson, þjálfari liðsins, ekki hafa heyrt ummælin sem látin voru falla. Þá segir hann einnig að leikmaður í hæsta gæðaflokki verði að geta meðhöndlað ákveðið magn af pressu.

Karlsson sagði þó að mögulega hefði verið farið yfir velsæmismörk og að félagið ætlaði að rannsaka hvað sagt var.

Marius Borge, formaður Follo, tók ekki í sama streng og tók fyrir það að stuðningsmenn félagsins hefðu farið yfir strikið.

Bergen vann leikinn 29-27 þökk sé þremur mörkum Daling sem var á síðustu leiktíð valinn besti leikmaður deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×