Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Samúel Karl Ólason skrifar 19. september 2025 10:09 Málefni Jimmys Kimmel var mikið til umræðu hjá þáttastjórnendum spjall- og gamanþátta vestanhafs í gærkvöldi. Stjórnendur spjallþátta vestanhafs voru nokkuð þungir á brún vegna þess að þáttur Jimmys Kimmel var tekinn úr loftinu í vikunni en gerðu þrátt fyrir það stólpagrín að vendingunum og Donald Trump, forseta, þar sem þeir lofuðu hann í hástert, með mikilli kaldhæðni.
Forsvarsmenn Disney og sjónvarpsstöðvarinnar ABC, sem er í eigu Disney, tóku þá ákvörðun í vikunni að hætta að sýna þátt Jimmys Kimmel um óákveðinn tíma. Var það gert eftir að yfirmaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), gaf til kynna að útsendingaleyfi gæti verið tekið af sjónvarpsstöðvum sem sýna þættina. „Við getum farið auðveldu leiðina eða erfiðu leiðina,“ saði Brendan Carr, yfirmaður stofnunarinnar. Á það að vera vegna ummæla Kimmels sem tengjast morðinu á Charlie Kirk. Í flugvél sinni á leið til Bandaríkjanna frá Bretlandi í gærkvöldi kvartaði Trump yfir því hvað sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna væru neikvæðar í hans garð. Réttast væri að taka útsendingaleyfin af þeim vegna þessa. Í þætti sínum sem tekinn var upp og sýndur var á mánudaginn sagði Kimmel að „MAGA-gengið“ legði mikið púður í það að sannfæra heiminn um að morðingi Charlies Kirk væri ekki einn af þeim og reyndi að nýta sér dauða mannsins í pólitískum tilgangi. Inn á milli væru Trump-liðar syrgjandi. Þá gerði Kimmel einnig grín að því hvernig Trump hefði syrgt Kirk, en þeir þekktust vel, og sýndi myndbönd af forsetanum eftir morðið, þar sem hann talaði um það hve fallegur veislusalurinn sem verið er að byggja við Hvíta húsið yrði. Ítarlega var farið yfir aðdraganda þess að þættir Kimmels voru teknir úr loftinu í gær. Hér að neðan er farið yfir hvern þátt fyrir sig í gær og hvernig umfjöllunin um málefni Kimmels var. Meyers Seth Meyers byrjaði innslag sitt um málið með því að taka fram að hann hefði alltaf borið gífurlega virðingu fyrir Trump. Meyers sagðist ávallt hafa talað fallega um Trump en ef fólk sæi myndbönd þar sem hann segði eitthvað slæmt um forsetann væri það falsað með gervigreind. Því næst rifjaði Meyers upp heimsókn Trumps til Bretlands í vikunni og það hvernig JD Vance gagnrýndi Bretland fyrr á árinu í tengslum við málfrelsi og ritskoðun. Seinna í innslaginu tíundaði Meyers fjölda skipta þar sem Trump hefur staðhæft að sem forseti hafi hann bundið enda á ritskoðun af hálfu yfirvalda í Bandaríkjunum. Fallon Jimmy Fallon sagðist hafa vaknað við fjölda skilaboða frá föður sínum sem hefði staðið í þeirri trú að það væri þáttur hans sem hefði verið tekinn úr birtingu. Fallon sagði að hann myndi halda sínu striki og að orð forsetans eða aðgerðir ríkisstjórnarinnar myndu engin áhrif hafa á hann. Þegar hann sagði brandara sína um Trump var þó búið að lesa yfir þá hrós um forsetann. Að öðru leyti fjallaði hann lítið um málið. Jon Stewart Hinn reynslumikli Jon Stewart, sem stýrir Daily Show yfirleitt á mánudagskvöldum, settist niður í glænýju og gylltu setti í gærkvöldi, og hófst þátturinn á því að hann nyti nú blessunar ríkisstjórnar Trumps. „Við erum með glænýjan, bráðskemmtilegan, ríkissamþykktan þátt,“ sagði stressaður og hálf grátandi Stewart í upphafi langs innslags síns. Síðan jós hann lofi yfir Trump í takt við ríkissjónvarp Norður-Kóreu en augljóslega af mikilli kaldhæðni. Þá fór hann yfir hvað Repúblikanar hafa verið að segja undanfarna daga um hvað ekki megi segja um pólitíska andstæðinga sína og benti í kjölfarið á að Trump og hans fólk hefði gert það sama um langt skeið. Seinna í þættinum fékk hann Mariu Ressa, höfund bókarinnar: „Hvernig standa á í hárinu á einræðisherra“ og friðarverðlaunahafa og ræddu þau hvernig standa ætti í hárinu á einræðisherrum. Colbert Stephen Colbert varði einnig miklu púðri í málefni Kimmels í þætti sínum en forsvarsmenn CBS og Paramount hafa þegar tekið þá ákvörðun að hætta framleiðslu þáttar hans. Margir hafa haldið því fram að það hafi verið gert vegna þess að Paramount þurfti samþykki ríkisstjórnarinnar vegna samruna við Skydance. Það samþykki fékkst eftir að Paramount greiddi Trump sextán milljónir dala vegna lögsóknar sem sérfræðingar segja að Paramount hefði að öllum líkindum unnið, og eftir að Colbert var sagt upp. Sjá einnig: Þjónkun við Trump? - CBS leggur niður Late Show Hann spilaði eitt lag þar sem hann gerði grín að stjórnendum Disney og ABC, dró karakter sinn hinn íhaldssama Stephen Colbert úr Colbert Report aftur á sviðið og fjallaði mikið um Kimmel í upphafi þáttarins. Hann rifjaði meðal annars upp hvað það var sem Kimmel sagði sem reitti Trump-liða til reiði. Þá fékk hann til sín fréttamennina Jake Tapper og David Remnick, sem báðir voru mjög gagnrýnir á aðgerðir ríkisstjórnar Trumps í að þrýsta á fyrirtæki svo Kimmel yrði tekinn úr loftinu.
Bandaríkin Donald Trump Bíó og sjónvarp Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Sjá meira