Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Samúel Karl Ólason skrifar 19. september 2025 13:10 Kanadamenn hafa verið sérstaklega hvattir til að kaupa innlendar vörur og sniðganga vörur frá Bandaríkjunum. Getty Kanadamenn eru að fjarlægja sig verulega frá nágrönnum sínum í Bandaríkjunum. Þeir kaupa mun minna af vörum þaðan, ferðast lítið sem ekkert til Bandaríkjanna og neyta mun minna af bandarískum menningarafurðum.
Á sama tíma eru Bandaríkjamenn á erlendri grundu í auknum mæli að segjast vera kanadískir af ótta við slæm viðbrögð fólks við því hvaðan þau eru raunverulega. Fyrr á þessu ári lýsti Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, því yfir að gömlu og góðu sambandi ríkisins við Bandaríkin væri lokið. Var það í kjölfar þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, beitti Kanada umfangsmiklum tollum og öðrum aðgerðum. Var það gert með því yfirlýsta markmiði að þvinga Kanadamenn til þess að „verða 51. ríki Bandaríkjanna“. Trump hefur hótað því að innlima Kanada í Bandaríkin. Sjá einnig: Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Yfirlýsing Carneys virðist nú hafa raungerst, samkvæmt gögnum sem blaðamenn ríkisútvarps Kanada (CBC) hafa rýnt í. Útflutningur frá Kanada til Bandaríkjanna hefur dregist verulega saman en aukist töluvert til annarra ríkja og er búist við því að misvægið muni aukast enn frekar í framtíðinni þar sem ríkisstjórn Kanada vinnur að viðskiptasamningum við önnur ríki. Innflutningur frá Bandaríkjunum hefur dregist verulega saman og grasrótarhreyfingin „Kaupum kanadískt“ er sögð hafa gerbreytt stöðu mála í verslunum ríkisins. Forsvarsmenn margra verslana hafi alfarið losað sig við vörur frá Bandaríkjunum og innlendar vörur hafi fyllt skarðið. Þegar kemur að menningu hefur einnig dregið úr neyslu á afurðum frá Bandaríkjunum, eins og kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og bókum. Fólk horfir á meira af innlendu sjónvarpsefni og eru Kanadamenn sagðir lesa mun meira af bókum eftir innlenda höfunda. Hvergi þykir munurinn þó auðsýnilegri en þegar kemur að ferðalögum. Átta mánuði í röð hafa mun færri Kanadamenn ferðast til Bandaríkjanna en gerðu sama mánuð ári áður. Í ágúst var munurinn heil 34 prósent, samkvæmt CBC. Gögn frá Bandaríkjunum sýna að í júlí var fækkunin milli ára 1,3 milljónir. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, á blaðamannafundi í Mexíkóborg í gær. Carney er í Mexíkó að ræða bætt viðskiptasamband ríkjanna, sem bæði hafa orðið fyrir barðinu á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.AP/Adrian Wyld, The Canadian Press Sendiherra ósáttur við Kanadamenn Pete Hoekstra, sendiherra Bandaríkjanna í Kanada, sagðist í gær hafa orðið fyrir vonbrigðum með Kanadamenn. Hann var á ráðstefnu í Halifax og var þar spurður um hvað hefði komið honum mest á óvart síðan hann varð sendiherra í apríl. Hann sagði að tilfinningar Kanadamanna í garð Bandaríkjamanna hefðu komið honum verulega á óvart. Erfitt væri að finna Kanadamanna sem hefði ástríðu fyrir því að bæta samskipti ríkjanna. Þá sakaði hann yfirvöld í Kanada um „and-bandaríska“ stefnu, samkvæmt frétt Global News og gagnrýndi það að ráðamenn töluðu um viðskiptadeilur ríkjanna sem „viðskiptastríð. „Ef þið haldið að Bandaríkin séu í stríði við Kanada? Nei, við erum ekki í stríði. Ef forsetinn héldi að hann væri í stríði við Kanada, mynduð þið sjá allt öðruvísi samband … en þið sjáið núna. Þið hefðuð ekki bestu tollprósentu í heimi,“ sagði Hoekstra. Skreyta sig með hlynslaufi Kanada Kanadamenn á flakki um heiminn hafa um árabil sett fána ríkisins á farangur sinn og bakpoka, með því markmiði að aðskilja sig frá nágrönnum sínum í Bandaríkjunum. Þá hafa komið upp tímabil þar sem bandarískir ferðalangar hafa einnig skreytt sig með fána Kanada, þegar vinsældir Bandaríkjanna hafa dalað. Það þekktist til að mynda vel á árunum eftir innrás Bandaríkjanna í Írak. Þetta eru bandarískir ferðalangar byrjaðir að gera aftur í auknu mæli, samkvæmt frétt CNN. Er það að miklu leyti rakið til þess að víða um heim mæta bandarískir ferðamenn leiðindum þegar upp um þá kemst. Fregnir af þessu hafa borist til Kanada og þar á bæ eru menn ekki sáttir. Meðal þeirra ummæla sem heyrast frá Kanada eru: „Við erum ekki hulinskikkja ykkar.“
Kanada Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Erlent Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Innlent Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Innlent Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Innlent Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Innlent Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Erlent Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Erlent Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Innlent „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Innlent Fleiri fréttir Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Norska krónprinsessan í veikindaleyfi Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Rússar áfrýja niðurstöðu um hrap malasísku farþegaþotunnar Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Segir Pútín hafa valdið sér „miklum vonbrigðum“ Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Hans Enoksen er látinn Telja að manngerð hlýnun hafi valdið 16.500 viðbótardauðsföllum í sumar 80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag Menningarmálaráðherrann ósáttur og vill skrúfa fyrir fjármagn til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Fundu Guð í App store Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Segir Kennedy hafa rekið sig fyrir að standa við vísindaleg heilindi Fjarlægðu skýrslu um pólitískt ofbeldi hægri öfgamanna Vatnaskil í dönskum varnarmálum: Ætla að kaupa langdræg vopn í fyrsta sinn Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Segir að Navalní hafi verið myrtur í fangelsinu Bein útsending: Rauða dreglinum rúllað út fyrir Trump Evrópa sein með nýtt loftslagsmarkmið vegna óeiningar Opna tímabundna flóttaleið Ráðast í frekari rannsókn á andláti kvennanna sem létust í Laos Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi „Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“ Sjá meira
Menningarmálaráðherrann ósáttur og vill skrúfa fyrir fjármagn til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna
„Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“