„Ég held að það sé sterk friðarvon núna“ Lovísa Arnardóttir skrifar 9. október 2025 08:37 Erlingur Erlingsson er vongóður um að leiðtogar geti komist að samkomulagi sem geti leitt til varanlegs friðar. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir Ísraela og Hamas-liða í dauðafæri á að ná samkomulagi um varanlegan frið á Gasa og í Palestínu. Stóra prófið sé fundur ríkisstjórnar Ísraels í dag þar sem þarf að samþykkja samkomulagið. Eftir það taki við lausn gísla, brottlutningur Ísraelshers frá Gasa og flutningur hjálpargagna inn á svæðið.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur tilkynnt að Ísralar og leiðtogar Hamas hafi komist að samkomulagi um að koma á friði á Gasaströndinni. Öllum gíslum í haldi Hamas verði sleppt innan skamms og Ísraelar fjarlægi hermenn sína í þessum fyrsta fasa samkomulagsins. Fjölmiðlar ytra segja að til standi að skrifa undir samkomulagið í dag og að lifandi gíslum Hamas verði sleppt á laugardaginn eða á sunnudaginn. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segist vongóður um að það gangi að ná samkomulagi um frið á Gasa en segir nokkuð mikið þurfa til að það bæði gangi upp og að það nái að halda. „Við kannski byrjum á því að komast í gegnum þennan ríkisstjórnarfund í Ísrael í dag þar sem á að samþykkja vopnahlé, fangaskipti og brottflutning herafla og síðan bara skref fyrir skref í rétta átt,“ segir Erlingur sem var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Erlingur segir afvopnun Hamas ekki hluta af þessu fyrsta skrefi en að það sem hafi komið fram í máli samningamanna í Egyptalandi og Hamas-liða sjálfra sé að þeir séu til í að afvopnast að hluta og það sé ólíklegt að þeir skrifi undir eigin endalok. Erlingur segir það mikilvægan þátt í fyrsta skrefi samninganna að hjálpargögn fái að streyma inn á Gasasvæðið en flutningur þeirra var stöðvaður samhliða vopnahléi í mars. Hungursneyð ríkir á svæðinu og hefur gert í marga mánuði. Sérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa jafnframt gefið út að aðgerðir Ísraelshers á Gasa uppfylli fjögur af fimm skilyrðum þjóðarmorða. Donald Trump hefur verið nokkuð bjartsýnn í viðtölum og í tilkynningu á sínum eigin samfélagsmiðli um að samkomulagið muni halda. Erlingur segir ástæðu til að tala með þeim hætti og segir í raun eðlilegt að tala ekki niður þá möguleika sem eru fyrir hendi. Erlingur segir stóra prófið framundan ríkisstjórnarfundinn í dag en það sé klárt mál að aðilar beggja megin, bæði Hamas og aðrar vígasveitir í Palestínu og einhver hluti í Ísrael, vilji áframhaldandi átök. Erlingur telur þó báða aðila aðframkomna um að leita þess að ná einhverri niðurstöðu með hernaðarlegum hætti. „Ég held að það sé sterk friðarvon núna.“ Stórt tækifæri sem verði að grípa Erlingur segir að í breskum fjölmiðlum sé fjallað um þetta sem tækifæri, bæði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og Antonio Guterrez, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hafi lýst þessu þannig. „Þó að það hafi verið vopnahlé áður þá er núna einhvers konar braut vörðuð í áttina að varanlegum friði og það þarf að leggja allt í sölurnar til að ná því.“ Erlingur segir leiðtogana þannig í góðu færi núna á að ná því markmiði en viðurkennir að á sama tíma séu erfið viðfangsefni eftir eins og stjórnarfyrirkomulag á Gasa og að alþjóðleg friðargæslulið frá Arabaríkjum fái að fara inn á svæðið, en það sé flókin útfærsla. Hann segir ríkisstjórnarfund Ísraela stóra prófið í dag en svo eftir það, verði samkomulagið samþykkt þar, taki við brottflutningur eða flutningur Ísraelshers frá ákveðnum svæðum á Gasa, lausn gísla og flutningur hjálpargagna á svæðið. „Það er brothættur línudans framundan sem við þurfum að fylgjast með og getur klikkað mjög auðveldlega.“
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Donald Trump Egyptaland Bandaríkin Bítið Tengdar fréttir „Auðvitað er ég hrædd um hana“ „Auðvitað er mér ekki rótt. Auðvitað er ég hrædd um hana. En ég veit að hún stendur sig vel og ég er stolt af því sem hún hefur gert,“ segir Sólveig Hauksdóttir, móðir Margrétar Kristínar Blöndal, eða Möggu Stínu, sem hefur verið handtekin og flutt til Ísrael. 8. október 2025 20:32 Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild háskólans á Bifröst og sérfræðingur í hafrétti, segir ákvæði hafréttar og laga um vopnuð átök takast á í umræðu og skilgreiningu á handtöku Margrétar Kristínar Blöndal tónlistarkonu og annarra aðgerðasinna í nótt. Erfitt sé að fullyrða um lögmæti aðgerða Ísraela þegar allar staðreyndir liggi ekki fyrir. Erlendur sérfræðingur á sviði hafréttar fullyrti í sumar að handtaka aðgerðasinna á bátnum Madleen hafi verið ólögmæt. 8. október 2025 13:14 Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Ísraelski herinn handtók alla meðlimi bátsins Conscience um klukkan 04:30 að staðartíma í nótt. Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona, Magga Stína, var ein þeirra sem var um borð. Utanríkisráðuneyti Ísraels segir alla farþega skipanna við góða heilsu, að þau verði flutt til hafnar í Ísrael og vísað úr landi fljótlega. Utanríkisráðuneytið fylgist með málinu. 8. október 2025 07:17 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira
„Auðvitað er ég hrædd um hana“ „Auðvitað er mér ekki rótt. Auðvitað er ég hrædd um hana. En ég veit að hún stendur sig vel og ég er stolt af því sem hún hefur gert,“ segir Sólveig Hauksdóttir, móðir Margrétar Kristínar Blöndal, eða Möggu Stínu, sem hefur verið handtekin og flutt til Ísrael. 8. október 2025 20:32
Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild háskólans á Bifröst og sérfræðingur í hafrétti, segir ákvæði hafréttar og laga um vopnuð átök takast á í umræðu og skilgreiningu á handtöku Margrétar Kristínar Blöndal tónlistarkonu og annarra aðgerðasinna í nótt. Erfitt sé að fullyrða um lögmæti aðgerða Ísraela þegar allar staðreyndir liggi ekki fyrir. Erlendur sérfræðingur á sviði hafréttar fullyrti í sumar að handtaka aðgerðasinna á bátnum Madleen hafi verið ólögmæt. 8. október 2025 13:14
Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Ísraelski herinn handtók alla meðlimi bátsins Conscience um klukkan 04:30 að staðartíma í nótt. Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona, Magga Stína, var ein þeirra sem var um borð. Utanríkisráðuneyti Ísraels segir alla farþega skipanna við góða heilsu, að þau verði flutt til hafnar í Ísrael og vísað úr landi fljótlega. Utanríkisráðuneytið fylgist með málinu. 8. október 2025 07:17