Dómur kveðinn upp í Vaxtamálinu á morgun Árni Sæberg skrifar 13. október 2025 12:06 Sjö dómarar Hæstaréttar munu dæma í málin. Vísir Dómur í máli lántakenda á hendur Íslandsbanka vegna meintra ólögmætra skilmála í samningum um óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum verður kveðinn upp klukkan 13:30 á morgun. Málið varðar tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og viðskiptabankanna þriggja hins vegar.
Þetta segir í tilkynningu á vef Hæstaréttar. Á morgun verða fjórar vikur liðnar frá því að málið var endurflutt en það hafði áður verið flutt í vor.Málið var tekið fyrir á ný og flutt aftur í því skyni að fá afstöðu aðila til nánar tilgreindra atriða. Sjö dómarar og engin viðkoma í Landsrétti Málið er dæmt af öllum sjö dómurum réttarins, sem er aðeins gert í allra veigamestu dómsmálunum. Þá var málið tekið fyrir í Hæstarétti án viðkomu í Landsrétti, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi sýknað Íslandsbanka. Í febrúar síðastliðnum voru stóru viðskiptabankarnir þrír sýknaðir í Landsrétti í þremur sambærilegum málum. Neytendastofa lagði þó Íslandsbanka í einu máli. Auglýstu eftir fólki til að höfða mál Málin fjögur snerust um skilmála bankanna vegna lána með breytilegum vöxtum. Eitt þeirra var höfðað af Neytendastofu en þrjú af einstaklingum. Einstaklingarnir nutu liðsinnis Neytendasamtakanna í málinu en þau höfðu auglýst eftir fólki til að taka þátt í málinu. Samtökin telja að stærstur hluti lána með breytilegum vöxtum sé með ólöglegum skilmálum og að oftaka bankanna nemi um tveimur prósentustigum. Því séu það um 30 milljarðar króna á ári sem bankarnir taki of mikið til sín. Í maí síðasta árs gaf EFTA-dómstólinn út ráðgefandi álit að beiðni Héraðsdóms Reykjaness og Landsréttar. Í því sagði að orðalag í skilmálum lána þyrfti að vera nægilega gagnsætt jafnvel þó það þætti málfræðilega skýrt og skiljanlegt. Skilmálarnir þyrftu að vera skiljanlegir þannig að almennur neytandi sem teljist sæmilega vel upplýstur og athugull gæti skilið aðferðina sem beitt væri við ákvörðun um útlánavexti. EFTA-dómstóllinn áréttaði þó að það væri dómstóla á Íslandi að kveða á um hvort samningar með umræddum skilmálum haldi gildi sínu. Í máli Neytendastofu á hendur Íslandsbanka var úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála, um að skilmálar bankans hefðu ekki verið nægilega skýrir, staðfestur.
Fjármálafyrirtæki Dómsmál Neytendur EFTA Vaxtamálið Lánamál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira