Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Árni Sæberg skrifar 29. október 2025 16:40 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hyggst eyða óvissunni sem komin er upp á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Það verður gert með samráði við Seðlabanka Íslands um að hefja eins fljótt og auðið er birtingu vaxtaviðmiðs, sem getur legið til grundvallar verðtryggðum lánum. Vaxtaviðmiðið mun byggja á vöxtum ríkisskuldabréfa.
Þetta tilkynnti Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, á blaðamannafundi þar sem fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur. Hann vonast til þess að vaxtaviðmiðið verði birt í næstu viku. Talsverð óvissa ríkir á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli tveggja lántakenda á hendur Íslandsbanka, þar sem skilmálar um breytilega vexti á óverðtryggðu láni voru dæmdir ólögmætir. Ekki bætir úr skák að enn bíða þrjú sambærileg, en þó ólík, mál meðferðar hjá Hæstarétti. Þangað til að dómar verða kveðnir upp í þeim er alls óljóst hvers konar skilmála bankar mega skrifa inn í lánasamninga sína. Reikna má með dómi í fyrsta málinu af þremur um miðjan desember. „Viðmiðin um breytilega vexti eru upp í loft,“ sagði Daði Már. Bankarnir ýmist þegar breytt framboði eða sett á ís að hluta Fjöldi lánastofnana hefur þegar brugðist við dóminum með því að breyta framboði á lánum sínum, ýmist tímabundið eða varanlega. Landsbankinn reið á vaðið á föstudag og kynnti nýtt framboð sitt af íbúðalánum, sem felur meðal annars í sér að verðtryggð lán standa nú aðeins fyrstu kaupendum til boða. Arion banki hefur sett veitingu allra verðtryggðra lána á ís og að sögn forstöðumanns samskiptasviðs bankans er nú unnið að bráðabirgðalausn í þeim efnum. Vonir stjórnenda standi til þess að málin skýrist á næstu dögum. Hjá Íslandsbanka var gert hlé á veitingu verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum. Stjórnendur bankans vinna að því að bregðast við dóminum. Vinnunni ljúki á næstu dögum Daði Már segir afleiðingarnar af dómi Hæstaréttar í Vaxtamálinu vera mikil óvissa um lánveitingar til íbúðakaupa til skemmri tíma litið. Ríkisstjórnin vilji eyða þeirri óvissu í nánu samráði við Seðlabankann. Sú vinna sé þegar hafin. Seðlabankinn muni birta vaxtaviðmið sem byggir á vöxtum ríkisskuldabréfa. Kallað hefur verið eftir því síðustu daga að ríkisstjórnin brygðist við dómi Hæstaréttar og stöðunnar sem almennt er uppi á húsnæðismarkaði. Það gerði til að mynda Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, í samtali við Vísi í vikunni. Draga úr vægi verðtryggingar Daði Már segir þó að ríkisstjórnin muni fara í aðgerðir til þess að draga úr vægi verðtryggingarinnar í íslensku efnahagskerfi. Verðtryggingin sé barn síns tíma. Fyrst og fremst verði sjónum beint að löngum verðtryggðum lánum, til þess að koma í veg fyrir það að fólk festist í húsnæði sínu.
Vaxtamálið Lánamál Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Húsnæðismál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira