Handbolti

Lýsir eftir leið­toga ís­lenska lands­liðsins

Aron Guðmundsson skrifar
Strákarnir okkar á Evrópumótinu í upphafi árs 2024
Strákarnir okkar á Evrópumótinu í upphafi árs 2024 Vísir/Getty

Hand­boltaþjálfarinn Einar Jóns­son hefur áhyggjur af skorti á leið­togum í ís­lenska karla­lands­liðinu í hand­bolta en sá þó marga jákvæða punkta í leikjum liðsins í nýaf­stöðnu lands­liðs­verk­efni nú þegar dregur nær næsta stór­móti.

Strákarnir okkar spiluðu tvo æfinga­leiki við Þjóðverja á dögunum. Þeim fyrri lauk með of stóru ellefu marka tapi og leist mönnum ekki á blikuna en nokkrum dögum síðar mættust liðin aftur í Munchen og þar bar ís­lenska liðið tveggja marka sigur úr býtum 31-29.

Einar er þjálfari ríkjandi Ís­lands- og bikar­meistara Fram og er reglu­lega í hlut­verki sér­fræðings íþrótta­deildar Sýnar þegar kemur að ís­lenska lands­liðinu og hann var ánægður með það sem hann sá frá liðinu í seinni leiknum gegn Þjóðverjum.

„Maður fylltist bjartsýni aftur eftir seinni leikinn,“ segir Einar að­spurður um það hvernig hann horfir á nýaf­staðið lands­liðs­verk­efni. „Hann var virki­lega góður. Þetta er það lið sem að maður þekkir og vonast eftir að maður sjái inn á vellinum. Ég er svo sem bara bjartsýnn á fram­haldið en eftir fyrri leikinn var maður ekkert svaka­lega bjartsýnn. Svo er það líka bara spurning núna hvort það hafi verið jákvætt að fá smá skell svo menn vakni aðeins, því við megum ekki vera að fá þessa skelli í janúar. Það er ljóst því þá getur þetta farið illa.“

Eitthvað til að hafa áhyggjur af 

En er þá hægt að skrifa þetta stóra tap í fyrri leiknum á að ís­lenska liðið hafi ein­fald­lega bara ekki hitt á sinn dag eða er eitt­hvað stærra og meira á bak við þá frammistöðu sem liðið sýndi þar?

„Auðvitað var þetta bara ekki þeirra dagur. Það er náttúru­lega engin spurning. Utan frá séð leit þetta þannig út að hugar­farið hafi ekki verið gott komandi inn í leikinn sem og í leiknum. Svo verður þetta bara hálf ráða­laust. Þetta er eitt­hvað til að hafa áhyggjur af, við áttum svona leik á síðasta stór­móti líka og þurfum virki­lega að passa upp á að vera alltaf hundrað pró­sent með á nótunum þegar að hólminn kemur.“

Saknaði Arons 

Þá er Einar á þeirri skoðun að það vanti af­gerandi leið­toga inn á vellinum hjá ís­lenska lands­liðinu.

„Maður veltir því fyrir sér hvort það hafi vantað ein­hvern leið­toga til að stíga inn í þegar að það gekk sem verst, þegar að menn áttuðu sig á því að þetta var ekki að fara í rétta átt. Ein­hvern sem lætur menn heyra það eða peppar menn upp. Ég saknaði Arons Pálmars­sonar í þessum leik, ekkert endi­lega með það fyrir augum að hann þyrfti að vera raða inn mörkum heldur sem leið­togi. And­legur leið­togi liðsins. Það er eitt­hvað sem maður hjó eftir. Mér finnst það vanta í þetta lið.“

Aron Pálmarsson lagði skóna á hilluna fyrr á árinuSanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images

Ekki sé skortur á heimsklassa leik­mönnum í ís­lenska lands­liðinu.

„Við er náttúru­lega með frábæra hand­bolta­menn innan okkar raða, tvo til þrjá leik­menn sem eru á meðal topp átta bestu hand­bolta­manna í heiminum. En þeir eru kannski ekkert svona rosa­lega út á við (e.out­going) týpur og leiða liðið að ein­hverju leiti bara áfram með sinni góðu frammistöðu og getu sem hand­bolta­menn.

En maður spyr sig hver ætlar að taka þetta hlut­verk sem Aron Pálmars­son er að skilja eftir sig. Að vera þessi leið­togi sem talar inn í klefanum, inni í hálf­leik, fyrir- og eftir leiki. Hver frontar þjálfarann með ein­hverja hluti og hver er að fronta liðið þegar að gengur illa. Mér finnst Snorri vera ein­hvern veginn einn í þessu. Þú þarft líka að fá ein­hvern leik­menn sem getur leitt liðið áfram. Það er bara áskorun fyrir Snorra og þjálfara­t­eymið að finna út úr því.“

Stöðugleiki helsta áskorunin

Strákarnir okkar luku nýaf­stöðnu lands­liðs­verk­efni með virki­lega flottri frammistöðu og góðum sigri fyrir framan troðfulla höll af Þjóðverjum í Munchen og er Einar mjög ánægður með það sem hann sá frá liðinu þar.

„Heildar­myndin var mjög góð. Við vorum að vinna þennan leik og það þrátt fyrir að Ómar Ingi hafi ekki verið á sínum besta degi. Mér fannst ég sjá ákveðin gildi og reglur í vörninni sem voru mjög aug­ljósar. Þristarnir hjá okkur voru góðir. Við vorum að spila með Elvar, spila með Ými og Arnar Frey. Þeir voru að rúlla þessu að miklu leiti og ég var mjög hrifinn af því.

Arnar Freyr Arnarsson heillaði Einar í sigurleiknum gegn Þjóðverjum

„Arnar Freyr kom mjög sterkur inn í þennan leik og þá var Björg­vin Páll frábær. Heildar­myndin var góð. Fáir tapaðir boltar, við erum agaðir og eðli­lega þar sem að við vorum að vinna Þjóðverja á þeirra eigin heima­velli. Við vitum alveg að þetta lið getur þetta, svo er þetta bara spurning um stöðug­leika í frammistöðunni. Það er það sem verður helsta áskorunin í janúar. Að reyna halda þessu gæða­stigi út allt mótið og í öllum leikjunum.“

Ís­lenska lands­liðið er á meðal þátt­tökuþjóða á Evrópumótinu í hand­bolta í janúar næst­komandi. Mótið verður haldið í Dan­mörku, Noregi og Svíþjóð og mun Ís­land spila leiki sína í riðla­keppninni í Kristian­stad í Svíþjóð. Þar er liðið í F-riðli með Ung­verjum, Pól­verjum og Ítölum. Fyrsti leikur liðsins er gegn Ítalíu þann 16. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×