Viðskipti innlent

Telja við­gerð geta tekið allt að ár

Samúel Karl Ólason skrifar
Framleiðsla í álveri Norðuráls á Grundartaka hefur dregist mjög saman vegna bilunarinnar sem varð í síðasta mánuði.
Framleiðsla í álveri Norðuráls á Grundartaka hefur dregist mjög saman vegna bilunarinnar sem varð í síðasta mánuði. Vísir/Vilhelm

Forsvarsmenn Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, telja að viðgerð vegna alvarlegrar bilunar í álverinu á Grundartaka gæti tekið allt ellefu til tólf mánuði. Þangað til bilunin hefur verið löguð er framleiðslan í álverinu einungis þriðjungur af því sem hefðbundið er.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju ársfjórðungsuppgjöri frá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, sem birt var í dag.

Þegar kemur að henni kemur fram í uppgjörinu að forsvarmenn félagsins telji að tryggingar muni greiða fyrir bróðurpartinum af skaðanum sem fyrirtækið verður fyrir.

Áhugasamir geta fundið frekar upplýsingar um uppgjör Century Aluminum hér.

Bilunin var mjög alvarleg og er framleiðsla í álverinu einungis einn þriðji af því sem hún á að vera. Talið er að hún gæti haft töluverð áhrif á útflutningstekjur Íslands og starfsmenn Norðuráls þar til hún verður löguð.

Þar að auki hefur bilunin umfangsmikil áhrif á tengda starfsemi.


Tengdar fréttir

„Ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina vera að taka til eftir óstjórn í ríkisfjármálum á síðustu árum en sérstök umræða um efnahagsmál er í gangi á Alþingi að beiðni Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokks. Guðrún sagði stöðu hagkerfisins erfiða og að atvinnulífið ætti undir högg að sækja.

Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar

Halla Gunnars­dóttir for­maður VR og Vil­hjálmur Birgis­son for­maður Starfs­greina­sam­bandsins segja fullt til­efni til að hafa áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Þau segja þörf á fleiri að­gerðum til að tryggja betra húsnæðis­verð og að það þurfi að lækka vexti til að „hleypa að súr­efni bæði til heimila og fyrir­tækja“. Halla og Vil­hjálmur voru til viðtals í Bítinu.

Engar uppsagnir í farvatninu

Enn sem komið er eru engin áform uppi um uppsagnir starfsmanna Norðuráls á Grundartanga, þrátt fyrir alvarlega bilun sem kom upp í verksmiðjunni í síðustu viku. Þá stendur ekki annað til en að verksmiðjan verði rekin á fullum afköstum þegar viðgerðum hefur verið lokið.

Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku

Afleiðingar bilunar í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga gætu byrjað að komast á hreint í næstu viku ef línur skýrast þá um hvenær nýr búnaður fæst til landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×