Vissi ekki að hann hafði ekki klikkað á skoti: „Það er bara geggjað“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. nóvember 2025 21:35 Garðar Ingi Sindrason skoraði úr öllum 13 skotum sínum í kvöld. Vísir/Anton Brink Garðar Ingi Sindrason var maður kvöldsins í Kaplakrika er hann skoraði 13 mörk úr 13 skotum í 13 marka sigri FH gegn KA. „
Þetta var bara frábært í kvöld og frábært svar eftir síðasta leik sem var bara lélegur, sérstaklega sóknarlega, og við göngum stoltir frá þessum leik,“ sagði Garðar eftir 45-32 sigur FH gegn KA í 10. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Hann segist þó ekki hafa verið meðvitaður um að hvert eitt og einasta af 13 skotum hans hafi endað í netinu í kvöld. „Það er bara geggjað. Og að klikka ekki á skoti, ég vissi það ekki,“ sagði Garðar léttur, áður en hann fór yfir það hvað FH sem lið hafi gert rétt í leik kvöldsins gegn KA-liði sem hefur farið vel af stað í vetur. „Við spilum bara frábæran sóknarleik. Vörnin var líka bara fín og í takt við leikinn. KA-menn eru búnir að vera heitir og eru í toppbaráttunni þannig þetta var bara gríðarlega sterkur sigur.“ Þrátt fyrir frammistöðu Garðars, og FH, í kvöld vill hann þó halda sér á jörðinni. „Við erum bara að reyna að finna jafnvægi og ná að verða stabílir. Í síðasta leik duttum við aðeins niður, þannig nú þarf bara að ná að tengja saman leiki,“ sagði Garðar að lokum.
Olís-deild karla FH KA Mest lesið Fræg íþróttafréttakona brann inni með þremur börnum sínum Sport Aldrei kynnst öðru eins fyrir stærsta leik Heimis með Íra Fótbolti Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Handbolti Of mikill snjór til að halda skíðamót í Hlíðarfjalli Sport Ung hnefaleikakona í dái eftir rothögg Sport Hnefaleikakonan unga vöknuð úr dái Sport Kynjakvóti FIFA: „Átt bara að fá starfið á eigin verðleikum“ Fótbolti Sonur Maradona: „Ef pabbi var Guð er McTominay Jesús“ Fótbolti Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Handbolti Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Bikarinn brotnaði við lyftingu HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Sjá meira