Svona fer peningaþvætti fram Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 17. nóvember 2025 19:17 Áætlað er að heildarumfang peningaþvættis nemi 2–5 prósentum af vergri landsframleiðslu á heimsvísu, sem jafngildir um 90–230 milljörðum króna á Íslandi árið 2024. Vísir/Heiðar Fjármögnun á lúxuslífstíl, kaup á gjaldeyri og fasteignum, lánagerningar og svokallaðar sýndareignir eru meðal algengustu leiða skipulagðra brotahópa til peningaþvættis. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Peningaþvætti felur í sér að dylja uppruna fjárhagslegs ávinnings af ólöglegri starfsemi. Í skýrslunni er peningaþvætti skipt í þrjú stig. Á því fyrsta er ólöglegum ávinningi komið fyrir í fjármálakerfinu. Á því næsta er ávinningurinn fluttur um fjármálakerfið til að leyna uppruna hans. Loks er hann hagnýttur eins og hann hafi verið fenginn löglega. Aðferðirnar sífellt flóknari Fram kemur að peningaþvætti sé stundað af ólíkum aðilum í samfélaginu en sé í raun grundvallarþáttur í starfsemi brotahópa og meginforsenda þess að skipulögð brotastarfsemi þrífist. Eftir því sem brotahópar verða umfangsmeiri og skipulagðari nýti þeir flóknari aðferðafræði við peningaþvætti. Vísað er í nýlega skýrslu Europol því til stuðnings, en í skýrslunni kemur fram að 86 prósent af hættulegustu skipulögðu brotasamtökunum í Evrópu nýti sér lögleg fyrirtæki við brotastarfsemi sína og peningaþvætti. Sérfræðingar aðstoði við peningaþvætti Hérlendis endurspeglist þróunin meðal annars í notkun svokallaðra leppa. Það séu oft einstaklingar í viðkvæmri stöðu, sem fengnir eru til að vera skráðir eigendur fyrirtækja, notaðir sem milliliðir í millifærslum, gjaldeyrisviðskiptum eða í tengslum við tilhæfulausa reikninga. Þá geti þróunin hér á landi, líkt og á alþjóðavísu, verið sú að sérfræðingar á sviði fjármála og lögfræði aðstoði við peningaþvætti og dragi úr líkum á að brotin komist upp. Vísað er til nýlegs dóms Héraðsdóms Reykjaness þar sem lögmaður var dæmdur fyrir peningaþvætti þar sem hann hafði ráðstafað ólögmætum ávinningi. Þó að málið hafi ekki snúið að skipulagðri brotastarfsemi sé það til staðfestingar að slík þjónusta sé til staðar á Íslandi. Í skýrslunni segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætli að heildarumfang peningaþvættis nemi 2–5 prósentum af vergri landsframleiðslu á heimsvísu, sem jafngildi um 90–230 milljörðum króna á Íslandi árið 2024. Loks er vikið að sex helstu aðferðum skipulagðra brotahópa til peningaþvættis. Þær eru samkvæmt skýrslu greiningardeildarinnar eftirfarandi. 1. Neysla og lífstíll Ein algengasta leiðin til að þvætta ólögmætan ávinning er að nýta hann til reglubundinnar neyslu, til dæmis matarkaup og almenna þjónustu. Þá er þekkt að hann sé einnig nýttur til að fjármagna dýrari lífstíl, sem sagt reglubundnar máltíðir á veitingastöðum og lúxusvörur. 2. Kaup og smygl á gjaldeyri Ávinningi er breytt í gjaldeyri og smyglað úr landi til neyslu, fjárfestinga eða til að fjármagna áframhaldandi brotastarfsemi. Féð getur skipt um margar hendur á leiðinni til að draga úr rekjanleika. Eðli málsins samkvæmt er þessi aðferðafræði meira notuð af þeim sem hafa erlend tengsl. 3. Fasteignaviðskipti- og framkvæmdir Brotahópar nýta ýmsar leiðir til að þvætta fé í gegnum fasteignir. Talið er að þetta sé ein áhættumesta tegund viðskipta hvað varðar peningaþvætti á Íslandi. Í skýrslunni er sett fram dæmi um slíka peningaþvætti í gegnum fasteignaviðskipti, sem er eftirfarandi: Keypt er fasteign. Hluti útborgunar er greiddur svart með „óhreinu“ reiðufé (PÞ1), og er kaupverð því skráð lægra en ella í kaupsamning. Lán er tekið fyrir útistandandi kaupverði og fær þannig lántaki „hreint“ fjármagn í hendurnar. Greitt er af láninu mánaðarlega með „óhreinu“ reiðufé (PÞ2). Framkvæmdir við fasteignina eru greiddar svart með „óhreinu“ reiðufé (PÞ3). Að lokum má selja eignina og hægt er að gefa upp hærri söluhagnað en tilefni er til (PÞ4) og þannig útskýra auknar tekjur. 4. Fjárfesting í öðrum verðmætum Kaup á verðmætum á borð við listaverk, skartgripi og bíla, en með því má geyma eða flytja verðmæti utan hefðbundins fjármálakerfis. 5. Lánagerningar Brotahópar nota ýmsar leiðir til að þvætta fé í gegnum lán, meðal annars í tengslum við fasteignaviðskipti. Þá eru til dæmi um að brotamenn kaupi svokölluð innheimtuskuldabréf frá innheimtufyrirtækjum. Þannig getur brotamaður sýnt fram á „hreint“ tekjustreymi þegar hann tekur við endurgreiðslu skuldabréfsins. Þá má nefna að upphafleg lánsfjárhæð getur verið töluvert lægri en heildarendurgreiðsla lántaka. Í mörgum tilfellum eru slík skuldabréf tilhæfulaus, það er einungis til að þvætta fé. Í sumum tilfellum hafa komið fram vísbendingar um fjárkúgun eða notkun áðurgreindra „leppa“. 6. Sýndareignir Vísbendingar eru um að brotamenn nýti í auknum mæli sýndareignir við peningaþvætti. Þvættið er þá fyrst og fremst falið í því að sýndareignir eru fluttar á milli einstaklinga. Slíkir flutningar, eða viðskipti, eru nafnlausir, hraðir og án landamæra, sem dregur úr rekjanleika.
Efnahagsbrot Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira