Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 19. nóvember 2025 21:01 Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Einar Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði að bankar skáki í skjóli dómsins og hækki vexti sína og þrengi lánaskilmála. Hann segir ekkert í dómi hæstaréttar sem segi til um að bankarnir þurfi þess. „
Bankarnir eru að skila methagnaði, þeim gengur vel. Þeir hafa þriggja prósenta vaxtamun á meðan í Evrópu gengur og gerist að þeir séu um eitt og hálft prósent,“ segir Breki en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar. Hann segir bankana hafa borð fyrir báru og að þeir ættu að geta, ef þeir vildu, lækkað vexti. Breki segir fólk hafa verið í sambandi vegna breyttra lánaskilyrða og vegna erfiðleika við breytinga á sínum lánum vegna endurfjármögnunar. Neytendasamtökin hafi aðstoðað fólk með þessa hluti síðustu daga. Enn á eftir að taka fyrir fjögur mál um vexti hjá Hæstarétti. Spurðu hvort hann eigi von á því að lánaskilyrði herðist enn frekar segist Breki ekki eiga von á því. „Ef bankarnir ætla að prísa sig út af þessum markaði þá vil ég hvetja lántaka til þess að leita til lífeyrissjóðanna sinna,“ segir hann og að þeir séu allir að bjóða mun betri kjör en bankarnir og að neytendur verði að velja með veskinu. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi einnig í kvöldfréttum við seðlabankastjóra um ákvörðun peningastefnunefndar um að lækka vexti en fram kom í dag að vaxtamálið svokallaða hafi haft áhrif á ákvörðun nefndarinnar um að lækka vexti. Lánskjör heimilanna hafa versnað verulega vegna vaxtamálsins svokallaða að sögn Seðlabankastjóra. Áhrif áfalla sem dunið hafa á hagkerfinu undanfarið eigi hins vegar eftir að koma í ljós. Hagvaxtarspá fyrir næsta ár hafi versnað verulega og sé svipuð og í Covid.
Neytendur Vaxtamálið Dómsmál Verðlag Seðlabankinn Fjármálafyrirtæki Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Íslandsbanki lækkar vexti Íslandsbanki lækkar vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi þann 24. nóvember, næsta mánudag. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að vaxtatafla Ergo muni taka gildi 21. nóvember, á föstudag. 19. nóvember 2025 19:41 Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti skref í rétta átt nú þegar skýr merki eru um kólnun í hagkerfinu. Í tilkynningu segir að peningalegt aðhald þrengi nú þegar verulega að skuldsettum heimilum og geti ýtt undir hraðari kólnun hagkerfisins og stuðlað að auknu atvinnuleysi. Miðstjórn minnir í tilkynningu á skuldbindingar atvinnulífs að halda aftur af verðhækkunum og loforð stjórnvalda um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum 19. nóvember 2025 17:26 Skaut föstum skotum á Seðlabankastjóra Ásthildur Lóa Þórisdóttir, þingmaður Flokks fólksins, gagnrýndi lækkun Seðlabanka Íslands á stýrivöxtunum. Hún sagði lækkunin aumingjalega í samanburði við útgjöld sem Seðlabankinn fór í vegna breytinga á húsnæði þeirra. 19. nóvember 2025 16:55 Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira
Íslandsbanki lækkar vexti Íslandsbanki lækkar vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi þann 24. nóvember, næsta mánudag. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að vaxtatafla Ergo muni taka gildi 21. nóvember, á föstudag. 19. nóvember 2025 19:41
Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti skref í rétta átt nú þegar skýr merki eru um kólnun í hagkerfinu. Í tilkynningu segir að peningalegt aðhald þrengi nú þegar verulega að skuldsettum heimilum og geti ýtt undir hraðari kólnun hagkerfisins og stuðlað að auknu atvinnuleysi. Miðstjórn minnir í tilkynningu á skuldbindingar atvinnulífs að halda aftur af verðhækkunum og loforð stjórnvalda um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum 19. nóvember 2025 17:26
Skaut föstum skotum á Seðlabankastjóra Ásthildur Lóa Þórisdóttir, þingmaður Flokks fólksins, gagnrýndi lækkun Seðlabanka Íslands á stýrivöxtunum. Hún sagði lækkunin aumingjalega í samanburði við útgjöld sem Seðlabankinn fór í vegna breytinga á húsnæði þeirra. 19. nóvember 2025 16:55