Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. nóvember 2025 12:00 Lífið á Vísi frumsýnir tónlistarmyndband frá tónlistarborginni Reykjavík. Stikla Reykjavíkurborg iðar af menningu og lífi allan ársins hring. Þrátt fyrir að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sé nýafstaðin þýðir það ekki að það sé ekki hægt að sækja ótal skemmtilega tónleika á næstu misserum.
Í fréttatilkynningu frá borginni segir: „Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er nýafstaðin og hefur enn á ný beint kastljósi að því hve rík af tónlistarmenningu Reykjavík er. Á þessum tíma árs iðar borgin af lífi, tónleikastaðir miðbæjarins lifna við, fyllast af listamönnum, íbúum og erlendum gestum og umbreyta Reykjavík í sannkallaða tónlistarborg. Það er eitthvað einstakt við þá stemningu sem myndast og skapar ógleymanlega upplifun. Lifandi tónlistarflutningur og minni tónleikastaðir hafa ekki einungis gífurleg áhrif á mótun og framvindu í ferli tónlistarfólksins sjálfs heldur eru þeir lykilatrið að undirstöðum menningarborga. Tónlistarborgin Reykjavík vill því vekja sérstaka athygli á minni tónleikastöðum borgarinnar og hvetja fólk til að sækja lifandi tónleika með sínu uppáhalds tónlistarfólki og halda þannig tónleikastöðunum okkar lifandi.“ Af því tilefni hefur Tónlistarborgin unnið seríu af myndböndum um nokkra af tónleikastöðunum okkar þar sem spjallað er við rekstraraðila og veitt er innsýn í eðli hvers staðar fyrir sig. Til að keyra seríuna í gang frumsýnir Vísir hér stiklu að seríunni. Klippa: Tónlistarborgin Reykjavík „Hvort sem þú ert að uppgötva eitthvað alveg nýtt eða styðja við þitt uppáhalds listafólk þá er full ástæða til að halda stemningunni áfram eftir Airwaves og kíkja á tónleika allt árið um kring. Styðjum tónlistarfólkið okkar, tónleikastaðina og viðhöldum stemmningunni sem gera Reykjavík að einni skemmtilegustu tónlistarborg heims,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Hér má fylgjast með stöðugt uppfærðri tónleikadagskrá.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Samkvæmislífið Reykjavík Mest lesið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira