Vélfag áfrýjar dómnum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 25. nóvember 2025 19:03 Höfuðstöðvar Vélfags á Akureyri. Vélfag Vélfag ehf. mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í morgun þar sem íslenska ríkið var sýknað af kröfum félagsins. Félagið hefur sætt þvingunaraðgerðum vegna tengsla eiganda þess við rússneskt félag sem talið er hluti af skuggaflota Rússa frá því í sumar.
Annað málið sem var höfðað gegn ríkinu snerist um þá ákvörðun utanríkisráðuneytisins að hafna beiðni Vélfags um að skrá Ivan Kaufmann, meirihlutaeiganda fyrirtækisins, sem stjórnarformann í sumar. Í hinu málinu krafðist Vélfag þess að ákvörðun Arion banka um að frysta fjármuni fyrirtækisins í júlí yrði endurskoðuð. Framkvæmd þvingunaraðgerða framseld til einkarekins viðskiptabanka Í tilkynningu frá Vélfagi segir að félagið sé ósammála niðurstöðunni og muni áfrýja dómnum. Fyrirtækið muni halda áfram að vinna málið af fullri festu og tryggja að réttur þess verði virtur á öllum stigum málsmeðferðar. „Málið vekur upp áleitnar spurningar um valdheimildir og framkvæmd íslenskra stjórnvalda á settum lögum. Það er afar óvenjulegt, og að okkar bestu vitund fordæmalaust, að framkvæmd þvingunaraðgerða gagnvart íslensku fyrirtæki virðist hafa verið framseld til Arion banka, einkarekins viðskiptabanka.“ ,,Niðurstaðan kemur Vélfagi á óvart. Félagið telur að það gangi ekki upp að í lögum sé lögð sú skylda á fjármálafyrirtæki að frysta bankareikninga og að svo skuli sá, sem sætir frystingu, þurfa að beina kröfu um afléttingu til viðkomandi fjármálafyrirtækis,“ er haft eftir Sigurði G. Guðjónssyni, lögmanni Vélfags, í tilkynningu. „Fjármálafyrirtækið er ekki bundið af málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar og hefur þvertekið fyrir að það hafi hlutverk við afléttingu frystingarinnar. Höfði félagið mál á hendur fjármálafyrirtækinu er jafnframt ljóst að málið fengi ekki flýtimeðferð og gæti tekið tvö ár í hið minnsta,” segir Sigurður. Haft var eftir Ivan Kaufmann, skráðum stjórnarformanni Vélfags, í Morgunblaðinu í dag að hann ætti von á að málið færi alla leið fyrir dómstóla í Evrópu. Hann væri fullviss um að sigur næðist fyrir dómstólum í Evrópu þegar málið kæmist þangað.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Dómsmál Rússland Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira