Snörp og áhrifamikil bók Lestrarklefinn 8. desember 2025 09:02 Nýjasta bók Arndísar Þórarinsdóttur er til umfjöllunar í Lestrarklefanum. Rebekka Sif tekur bók Arndísar Þórarinsdóttur, Sólgos fyrir í Lestrarklefanum. Hún hefur þetta að segja um bókina.
Ungmennabókin Sólgos eftir Arndísi Þórarinsdóttur er mögulega með flottustu kápu jólabókaflóðsins. Hún er allavega sú sem glansar best á, sérstaklega seinni partinn þegar sólin er að setjast. Arndís fær hér frábæra hugmynd, hvað myndi gerast á Íslandi ef sólgos myndi slá út öllu rafmagni og allar samskiptaleiðir myndu eyðast út? Ég viðurkenni að ég hafði aldrei heyrt um sólgos og yrði bara ánægð ef ég heyrði ekki aftur á það minnst eftir lestur þessarar bókar. Rebekka Sif fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Dystópískar hörmungar Unnur er í 10. bekk og er að gera sig til fyrir ball þegar rafmagninu slær út. Í fyrstu virðist þetta sakleysislegt en svo líður tíminn og það kemur í ljós að engin leið er að slá því aftur inn. Þá hefst dystópísk frásögn af tilraun Unnar og fjölskyldu hennar að lifa höfmungarnar af. Því þetta eru svo sannarlega hörmungar. Móðir Unnar er stödd í Eistlandi og engin leið er fyrir hana að komast aftur heim, hvað þá að láta vita af sér. Faðir söguhetjunnar fer strax í varnargír og prísar sig sælan að eiga byssur í læstum skáp í bílskúrnum. Nú skiptir allt í einu máli vera sem best settur, hafa bestu vistirnar, klæðnaðinn og lyfin. Fólk tekur þessu misalvarlega, sumir halda að rafmagnsleysinu ljúki innan skamms og skipta á hlýjum klæðnaði og mat fyrir Apple tölvur, síma og seðla. Sem eru auðvitað vita gangslausir hlutir í þessu ástandi. Bárátta, ást og ómögulegur veruleiki Arndís segir söguna blátt áfram, skefur ekki af neinu. Hugsanir Unnar eru í fyrirrúmi, stundum eru þær snarpar og fara úr einu í annað þar sem hún er að reyna að botna í ástandinu. Það sést að ritstíllinn hefur verið sniðinn að hugsunum unglingsins, það eru engar óþarfa lýsingar eða málalengingar. Í fyrstu kom mér þetta á óvart þar sem ég hef líklega lesið hverja einustu bók eftir Arndísi og fannst ég hér sjá nýjan brag yfir skrifunum. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira