Líta eigi á lofthelgi Venesúela sem lokaða Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. nóvember 2025 15:15 Donald Trump segir að líta eigi á lofthelgi Venesúela sem lokaða. AP Bandaríkjaforseti segir að líta eigi á lofthelgina yfir Venesúela sem lokaða en útskýrði ekki nánar hvers vegna. Í lok október á forsetinn að hafa heimilað bandaríska hernum að gera loftárásir á meinta fíkniefnaframleiðslu.
Í færslu á samfélagsmiðlinum sínum Truth Social skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti að flugfélög, flugmenn, fíkniefnasmyglarar og mansalsfólk ætti að líta á lofthelgina yfir Venesúela sem lokaða. Engin útskýring á af hverju forðast ætti lofthelgi Venesúela fylgdu. Samkvæmt Reuters gátu hvorki samskiptafulltrúar Venesúela né fulltrúar Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna veitt viðtöl. Undanfarna mánuði hefur bandaríski herinn ráðist 21 sinni á skip í Karabíhafinu sem þeir telja vera að flytja fíkniefni. Alls hafa 83 látist í árásunum. Bandaríski herinn hefur einnig aukið hernaðarleg umsvif sín á svæðinu. Þá heimilaði Trump CIA að ráðast í leynilegar aðgerðir í Venesúela og átti hann einnig að hafa sagt starfsmönnum hersins að fljótlega myndi herinn hefja aðgerðir í Venesúela til að stöðva meinta fíkniefnaframleiðendur. Í lok október átti forsetinn einnig að hafa gefið bandaríska hernum skipun um að hefja loftárásir í Venesúela á herstöðvar. Trump sakaði Nicolas Maduro, forseta Venesúela frá árinu 2013, um að heimila fíkniefnaframleiðslu í herstöðvunum. Maduro hefur verið ákærður af Bandaríkjamönnum fyrir fíkniefnasmygl og hryðjuverkastarfsemi og er hann sakaður um að stýra glæpasamtökum sem koma að því að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.
Bandaríkin Venesúela Donald Trump Hafið Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira