Sú besta hingað til Lestrarklefinn 16. desember 2025 12:53 Fanney Hrund Hilmarsdóttir heldur áfram að skrifa um fantasíuheiminn Dreim. Nýjasta bókin er tekin fyrir á menningarvefnum Lestrarklefinn. Önnur bókin í bókaflokknum Dreim er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Rebekka Sif hefur þetta að segja um bókna.
Bókaútgáfan Bókabeitan hefur verið hvað duglegust að veita fantasíuunnendum lesefni. Síðustu ár hafa komið út bækur í bókaflokknum Dreim, forleikinn Fríríkið árið 2021 og svo fyrsta bókin í þríleiknum sjálfum, Dreim: Fall Draupnis, árið 2023. Rebekka Sif fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Þetta er mentaðarfullur og flókinn fantasíuheimur og því ekki skrítið að höfundurinn Fanney Hrund Hilmarsdóttir taki sér nokkur ár til að fínpússa bækurnar. Í ár kemur út önnur bókin, Dreim: Dýr móðurinnar. Ég hikaði smá við að taka hana upp því Fall Draupnishafði verið svo myrk og þung, en það voru óþarfar áhyggjur hjá mér. Ég kolféll fyrir ævintýraheiminum sem var kynntur fyrir lesandanum í þessari bók. Í upphafi bókar vakna börnin og dreimfararnir Alex, Bella, Asili og Daríus upp í Ngala, einu af fjórum landa í Dreim. Heimur Ngala er virkilega heillandi, þar má finna þykkan regnskóg, dáleiðandi regnbogaá, hina hættulegu harmahamra og Kvikufannir – ógurlega jökulbungu sem er ólík þeirri sem við þekkjum úr raunheimum, sjóðandi kvika kraumar undir yfirborðinu. Dreimfararnir þurfa að leggja í flókið ferðalag til að komast í helli gárunganna, þeir hafa að geyma mikilvægan spádóm sem mun hjálpa börnunum í báráttunni gegn mykrinu sem hótar að taka yfir bæði Dreim og raunheima. Skapofsi, fyrsta skot og duldir kraftar Sagan er ekki aðeins af ferðalaginu heldur innri báráttu hvers og eins dreimfara. Skipt er um sjónarhorn reglulega og dreimfararnir, ásamt Staurian (dreimvárunni sem verndar og leiðbeinir þeim), fá sitt pláss í sviðsljósinu. Hver persóna fær sitt málsnið og mér fannst það takast einstaklega vel upp í þessari bók að skapa hverri persónu sína einstöku rödd. Alex fær svolítið að leiða söguna en hann er drengur á barmi unglingsára sem er svakalegur brandarakall en með mikinn skapofsa líka. Hans helsti óvinur er Daríus, sem er einn af dreimförunum, en hann lagði Asili, litlu systur Alex, í einelti í raunheimum. Daríus er þó á sínu eigin þroskaferðalagi og loksins fer að glitta í samkenndina sem hefur legið í dvala innra með honum. Bella er unglingsstúlkan í hópnum og sér varla annað en Staurian, ást og losti stjórna allri hennar hegðun. Sú yngsta í hópnum, Asili, virðist vera á mikilvægasta ferðalaginu en innra með henni búa öflugir kraftar sem enginn af þeim gerir sér grein fyrir. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Sjá meira