Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. desember 2025 13:01 Baldvin Þorsteinsson er forstjóri Samherja. Vísir/Vilhelm Breskt félag hefur stefnt Samherja fyrir hönd ríkisfyrirtækis í Namibíu um hundrað og fjörutíu milljarða íslenskra króna og verður dæmt í málinu í Bretlandi. Forstjóri fyrirtækisins segir að þegar hafi verið gripið til varnar í Bretlandi. Upphæðin sé súrealísk og hærri en eigið fé Samherja.
Fimm ára rannsókn embættis héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða lauk í júlí á þessu ári en enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort það verði ákært í málinu. Níu manns fyrrverandi eða núverandi starfsmenn Samherja eru með réttarstöðu sakbornings. Málið kom upp eftir þátt Kveiks þar sem fjallað var um starfsemi Samherja í Namibíu og meint mútubrot, peningaþvætti og auðgunarbrot. Í nóvember kom fram í umfjöllun RÚV að Í Namibíu sitja tíu menn, þar á meðal tveir ráðherrar, í varðhaldi og bíða þess að réttarhöld hefjist í máli þeirra. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa þegið milljarða frá Samherja, nýtt sér aðstöðu sína og áhrif, til að færa Samherja aðgang að auðlindum namibísku þjóðarinnar. Fyrirtækið sé stofnað til að stefna Samherja Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun og upplýsti að fyrirtækinu hefði verið stefnt vegna málsins í Bretlandi. Hann segir í samtali við fréttastofu að stefnan nemi gríðarlegum fjárhæðum. „Við fengum stefnu þar sem okkur er stefnt fyrir dómstólum í Bretlandi. Af fyrirtæki sem er stofnað í þeim tilgangi að gera kröfu á hendur okkur vegna starfsemi í Namibíu. Það er gert af hálfu ríkisfyrirtækis í Namibíu sem hefur hingað til ekki gert neinar kröfur á okkur en er þá búið að framselja réttinn til fyrirtækis í Englandi og fer fram á háar skaðabætur. Hann segir kröfuna óvenjulega. „Bótakrafan hljóðar upp á um hundrað og fjörutíu milljarða króna. Þessi upphæð er hærri en eigið fé fyrirtækisins. Þetta er nýtt og hljómar súrrealískt. Ég er ekki búinn að hugsa til enda hvaða áhrif það myndi hafa ef við töpum málinu,“ segir Baldvin. Rökstuðningur eftir áramót „Við eigum eftir að fá nánari rökstuðning fyrir kröfunni. Þetta er svona ferill þar sem við erum látin vita. Við höfum aðeins fengið að sjá ofan í kröfuna en það kemur þá í upphafi næsta árs. Við eigum líka eftir að fá betri upplýsingar um hvaða fyrirtæki þetta er sem sér um stefnuna,“ segir Þorsteinn. Hann segir að málið verði tekið fyrir í breskum dómstól á seinni hluta næsta árs og Samherji sé byrjaður að undirbúa sig fyrir málaferlin. „Við erum komin með lögmenn í Bretlandi sem munu verja okkar hagsmuni og hefja undirbúning þegar stefnan verður birt í heild sinni. Það er kostnaðarsamt að reka mál fyrir breskum dómstólum og ljóst að þetta mun taka orku, tíma og fjármuni frá fyrirtækinu ,“ segir hann. Vonast eftir niðurstöðu sem allra fyrst Aðspurður um hvernig Samherji svarar ásökunum í Samherjamálinu sem nú er hjá héraðssaksóknara svarar Baldvin: „Þetta eru þungar ásakanir og eðlilegt að þetta mál sé í rannsókn og við bíðum eftir niðurstöðu úr henni. Rannsókn málsins er nú lokið og er beðið eftir hvort það verði ákært eða ekki. Þetta er búið að taka mjög langan tíma og þeir sem liggja undir ámæli í málinu eru orðnir mjög langþreyttir á því að fá ekki niðurstöðu í það. Ég vona að niðurstaða komist í málið sem allra fyrst.“
Samherjaskjölin Sjávarútvegur Samherji og Seðlabankinn Namibía Akureyri Lögreglumál Tengdar fréttir „Þetta hefur verið þungur tími“ Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja segir það hafa verið erfitt fyrir pabba hans, Þorstein Má, og alla fjölskylduna að hann hafi verið með stöðu grunaðs manns í um fimmtán ár. Hann segir ásakanir gegn honum þungar. Málið sé í eðlilegum farvegi hjá Héraðssaksóknara en hann óski þess að málinu ljúki fljótlega. Hann segist stoltur taka við af föður sínum sem forstjóri og sjá mörg tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. 22. desember 2025 09:23 Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Sjá meira
„Þetta hefur verið þungur tími“ Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja segir það hafa verið erfitt fyrir pabba hans, Þorstein Má, og alla fjölskylduna að hann hafi verið með stöðu grunaðs manns í um fimmtán ár. Hann segir ásakanir gegn honum þungar. Málið sé í eðlilegum farvegi hjá Héraðssaksóknara en hann óski þess að málinu ljúki fljótlega. Hann segist stoltur taka við af föður sínum sem forstjóri og sjá mörg tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. 22. desember 2025 09:23