Í deilum við nágrannann vegna trjáa Jón Ísak Ragnarsson skrifar 28. desember 2025 15:07 Paul McCartney flottur á tónleikum í desember á síðasta ári í London. Getty Bítillinn Paul McCartney stendur nú í deilum við nágranna sinn í Westminster í Lundúnum, vegna tveggja friðaðra tráa sem Paul vill fella en nágranninn ekki.
Um er að ræða tvö garðahlynstré (sycamore), sem eru á vernduðu svæði og þarf því sérstakt leyfi borgaryfirvalda til að fella þau. Lögfræðingar Pauls segja að trén tvö séu orðin gömul, þau séu lúin, og verði þau felld verði meira pláss til vaxtar fyrir birkitré af agnbeykisættkvísl. Nágranni hans, Reinhold Meinen, íhaldssamur fjárfestir, er áhyggjufullur yfir þessu og lýsti vanþóknun sinni í bréfi til borgaryfirvalda. „Eins og fram kom í símtalinu, þá hef ég miklar efasemdir um að þessi tré séu illa haldin. Ég vil ítreka andstöðu mína við þessi áform og bið ykkur um að halda mér upplýstum um gang mála,“ sagði Meinen í bréfinu, en Telegraph fjallar um málið. McCartney keypti húsið árið 1965 fyrir 40 þúsund pund, en Meinen keypti eignina við hliðina í fyrra á tæplega fjórtán og hálfa milljónir punda. Annar íbúi á svæðinu segir að þar sem garðurinn sé allur friðaður sé mjög erfitt að fá leyfi fyrir hvers kyns framkvæmdum, gróðursetningum, skógarhöggi og öðrum framkvæmdum. „Það hefur verið erfitt í gegnum tíðina meira að segja að fá leyfi til að gróðursetja eitt lítið plómutré,“ segir hann. Fyrr á þessu ári fékk McCartney leyfi til að fella þrjú lime-tré og annað eikartré, en fyrir sex árum síðan stóð hann í deilum við borgaryfirvöld vegna áforma um að fella birkitré og tvö garðahlynstré. Var það vegna þess að McCartney fannst trén skyggja of mikið á garðpallinn hans. Borgaryfirvöld sögðu umsókn hans skorta almennilega lýsingu á því hvað stæði til að gera og fór svo að hann dró umsókn sína til baka.
Bretland England Nágrannadeilur Hollywood Tré Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira