Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Eiður Þór Árnason skrifar 31. desember 2025 12:31 Sánan hennar Guðrúnar Óskar Maríasdóttur á góðum degi. aðsend/samsett „Þetta er mikið áfall, alveg klárlega. Ég er búin að leggja mikið hjarta í að vera með sánurnar og þetta er svona svolítið heilagt rými fyrir mig og fólkið sem kemur. Það er búið að myndast mjög fallegt og skemmtilegt samfélag í kringum þetta. Eins og er oft með sánurnar þá er þetta oft griðastaður fyrir fólk. Þannig að þetta var bara mjög sárt. Það er leiðinlegt að enda árið svona.“
Þetta segir Guðrún Ósk Maríasdóttir, nuddari og sánugúsmeistari, en stórfelldar skemmdir voru unnar á sánuklefa hennar um jólin sem telst nú gjörónýtur. Ofninn í sánunni sem stóð á Álftanesi hafi verið eyðilagður og strompurinn ekki einu sinni látinn í friði. „Það var allt tekið. Þetta var ótrúlegt.“ Skemmdirnar hafi uppgötvast 27. desember og tveimur dögum seinna hafi verið búið að valda enn meiri usla. Miklar skemmdir voru unnar á sánunni.aðsend/samsett „Þannig að það er einhver sem er að koma þarna og leika sér að því að skemma. Maður skilur ekki alveg hvað fólki gengur til og einhvern veginn trúi ég því ekki að þetta séu fullorðnir einstaklingar sem myndu gera svona en svo veit maður aldrei hvernig fólk hefur það,“ segir Guðrún. Hún velti því fyrir sér hvort um sé að ræða handahófskennt skemmdarverk eða persónulega árás. Guðrún veit ekki hvenær atvikið átti sér stað en hún hafði síðast verið með gufubað á Þorláksmessu þann 23. desember. Fjórum dögum seinna fékk hún senda ábendingu um skemmdirnar en sánan er fjarri heimili hennar. FJárhagstjón er metið á um hálfa milljón króna og við bætist tekjutap.aðsend Áður gerð atlaga að sánunni og hún farið í sjóinn Guðrún segir fjárhagslegt tjón nema um hálfri milljón króna og við bætist tekjutap nú þegar hún geti ekki lengur tekið á móti fólki í gufubað. Sánan sé staðsett við ströndina við Hliðsnes á Álftanesi á frekar afskekktum stað nærri eyðibýli og lítilli íbúðabyggð. „Það er ekki mikið um mannaferðir þarna. Ekki nema bara fólk sem er að fara í göngutúr við ströndina,“ segir Guðrún. Bjórdósir og sígarettustubbar hafi sést við sánuna þegar innbrotið uppgötvaðist um helgina. Þetta sé ekki í fyrsta sinn sem atlaga er gerð að sánunni. Fátt var látið í friði. aðsend „Það er búið að reyna að skemma hana þrisvar sinnum.“ Í óveðri í október síðastliðnum hafi verið skorið á festingarnar sem halda henni niðri í tvígang. Þeim hafi verið bætt við eftir að sánan fauk í sjóinn á sama stað í janúar í fyrra. Þá tók við þriggja mánaða pása á meðan gerðar voru endurbætur. Nektarsánur á þriðjudögum „Ég var alltaf með nektarsánur á þriðjudögum og í sundfötum á föstudögum. Það eru átta manns sem komast í einu. Þetta er svona ritual. Við erum með tónlist, ferskar jurtir eða ilmkjarnaolíur, salt eða skykurskrúbb. Þetta var svo ljúft og gott. Ég leiðbeini fólki í gegnum öndun eða hugvekju með ásetning um að skilja eitthvað eftir sem þjónar þeim ekki lengur í sánunni í hitanum og taka inn nýja orku frá sjónum,“ segir Guðrún. „Nú er búið að vanhelga svæðið en við munum bara safna pening fyrir nýjum ofni og viðgerð vonandi. Ég finn fyrir miklum samhug frá fólki. Það hefur verið það bjarta í þessu að finna fyrir fólkinu og heyra hversu miklu máli hún skiptir fyrir fólkið og góðu stundirnar sem hafa verið þar. Það hefur verið mjög jákvætt að heyra það.“ Sánan var notuð minnst tvisvar í viku fyrir skemmdarverkin.aðsend Óska eftir upplýsingum Guðrún var búin að vera með sánuna í eitt og hálft ár og var hún keypt af litháskum smiðum. „Hún er svolítið sér á báti í smíði.“ Hún á ekki von á því að tryggingar bæti tjónið. Guðrún og eiginmaður hennar, Árni Kristjánsson, hafa óskað eftir upplýsingum um skemmdarverkin og bjóða hundrað þúsund krónur í peningaverðlaun til þeirra sem geta varpað ljósi á gerendurna. Engar slíkar upplýsingar hafa borist, að sögn Guðrúnar. Hún hafi enn ekki kært málið til lögreglu og vilja þau hjónin ræða við viðkomandi og hjálpa þeim „að komast á betri stað í lífinu,“ eins og Árni orðar það í færslu á samfélagsmiðlum.
Lögreglumál Reykjavík Gufuböð Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira