Handbolti

Heimsmeistararnir þurftu að fara í átta tíma rútu­ferð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Danska landsliðið hefur unnið sex stórmót (HM og ÓL) síðan liðið varð síðast Evrópumeistari árið 2021. Rasmus Lauge Schmidt, Magnus Saugstrup Jensen og Lukas Lindhard Jorgensen fagna hér saman heimsmeistaratitlinum fyrir ári síðan.
Danska landsliðið hefur unnið sex stórmót (HM og ÓL) síðan liðið varð síðast Evrópumeistari árið 2021. Rasmus Lauge Schmidt, Magnus Saugstrup Jensen og Lukas Lindhard Jorgensen fagna hér saman heimsmeistaratitlinum fyrir ári síðan. Getty/Mateusz Slodkowski

Slæmt veður í Norður-Evrópu hefur truflað undirbúning besta handboltalandsliðs heims fyrir komandi stórmót.

Danska handboltalandsliðið er ríkjandi Ólympíu- og heimsmeistari í handbolta karla og getur lokað hringnum með því að vinna Evrópumótið seinna í þessum mánuði.

Liðið varð í öðru sæti á EM fyrir tveimur árum og hefur ekki unnið Evrópumótið í fjórtán ár. Á sama tíma hafa Danir unnið tvo Ólympíugull og fjögur HM-gull. Það er því mikið hungur í danska landsliðinu að landa loksins Evrópugullinu.

Liðið er nú á lokasprettinum í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið þar sem þeir spila riðil sinn á heimavelli og mæta Portúgal, Norður-Makedóníu og Rúmeníu í riðlakeppninni.

Annað kvöld ætla Danir að hefja þátttöku sína á fjögurra þjóða móti í handbolta karla, svo kallaðri Gulldeild eða Golden League. 

Mikil snjókoma og harður vetur veldur dönsku handboltaherrunum aftur á móti vandræðum fyrir leikinn gegn Noregi en norska ríkisútvarpið segir frá.

Danirnir höfðu ætlað sér að fljúga frá Billund í Danmörku til Amsterdam í Hollandi á miðvikudag en veðrið setti heldur betur strik í þann reikning.

Því beið þeirra erfiður undirbúningur fyrir leikinn gegn Noregi með átta klukkustunda rútuferð frá Danmörku til Hollands. Einnig var frekari hætta á töfum vegna veðurs.

Danirnir settust í rútuna með stefnu á Holland í dag. Það verður síðan beðið frekari frétta af því hvort þeir á annað borð komist heilu á höldnu alla leið til Hollands.

Hin tvö liðin sem taka þátt í mótinu eru Holland og Grikkland en Hollendingar halda mótið í Almere, sem er rétt hjá Amsterdam.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×