Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. janúar 2026 20:34 Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor segir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um Grænland hafa haft í för með sér að fleiri Íslendingar horfi til Evrópusambandsins. Vísir/Vilhelm Bandaríkin hafa burði til að innlima Grænland ætli þau sér það að mati fyrrverandi utanríkisráðherra. Prófessor í stjórnmálafræði tekur undir það og segir ólíklegt að Evrópa muni fórna NATO fyrir Grænland. Yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um Grænland hafi þegar haft það í för með sér að fleiri Íslendingar horfi í átt að Evrópusambandinu.
Frá hans fyrra kjörtímabili hafa Donald Trump forseti Bandaríkjanna og ráðamenn í Washington ítrekað lýst því yfir að þeir ætli sér að eignast Grænland. Eftir nýjustu vendingar í Venesúela hafa forsetinn og hans fólk bætt í og talað um nauðsyn þess að eignast Grænland af þjóðaröryggisástæðum. Málið var rætt í sérstöku pallborði í Háskóla Íslands í dag. En á meðal þátttakenda var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Bandaríkin hafa augljóslega bæði hernaðarlega getu og bara einfaldlega aðgengi að Grænlandi til þess að framkvæma slíka aðgerð. Ég auðvitað vona enn þá að þetta séu svona stór orð til þess að ná einhverju öðru markmiði og það sé ekki raunveruleg áætlun stjórnvalda í Bandaríkjunum að innlima Grænland, en okkur er líka sagt að taka orðum hans alvarlega þannig að við verðum að gera það,“ segir Þórdís Kolbrún. Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði tekur undir orð Þórdísar og segir Bandaríkjamenn geta tekið yfir Grænland vilji þeir það. „Ef þessi ólíklega staða yrði að veruleika, þá myndu auðvitað dönsk stjórnvöld og nær öll Evrópuríki mótmæla harðlega. Það mætti gera ráð fyrir að dönsk stjórnvöld myndu slíta stjórnmálasambandi við Bandaríkin og einhver kannski myndu fylgja í kjölfarið. En ég myndi nú telja að í lok dags þá sé meginþorri Evrópuríkja ekki tilbúinn til þess að fórna NATO fyrir Grænland. Þannig að menn myndu líklega sætta sig við það að Bandaríkin tækju yfir landið til þess að reyna að halda áfram varnartengslunum við Bandaríkin og að halda NATO enn þá lifandi.“ Hann segir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um Grænland þegar hafa haft það í för með sér að fleiri Íslendingar horfi í átt að Evrópusambandinu. Íslendingar þurfi að skoða sérstaklega öryggisákvæði Evrópusambandsins sem feli í sér að öll 27 ríki sambandsins eigi að koma öðrum til aðstoðar þegar mikið liggi við. „Hvað felst í þessu, hvaða tækifæri liggja í þessu fyrir okkur og þetta kemur engan veginn í veg fyrir að við getum haldið áfram varnar- og öryggissamstarfinu við Bandaríkin, enda eru náttúrulega flest aðildarríki Evrópusambandsins líka innan Atlantshafsbandalagsins.“ Þórdís telur mikilvægt að taka umræðuna um Evrópumál á ábyrgan hátt. „Þessir hagsmunir sem eru undir og þessar breytingar sem við sjáum í veröldinni núna eru svo miklu stærri heldur en einhver flokkapólitík og það á við um stjórnmálamenn úr meirihlutanum og minnihlutanum.“
Grænland Utanríkismál Bandaríkin NATO Evrópusambandið Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira