Stólarnir léku sér að eldinum en fylgja Grindavík í undanúrslit Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 20:24 Tindastóll byrjar árið 2026 á tveimur afar sætum sigrum. Tindastóll/Davíð Már Grindavík og Tindastóll bættust í kvöld í hóp með Keflavík og verða með í fjögurra liða úrslitavikunni í VÍS-bikar kvenna í körfubolta. Ármann og Hamar/Þór spila svo um fjórða og síðasta farmiðann annað kvöld.
Keflavík sló Hauka út í dag með öruggum sigri og Tindastóll virtist einnig ætla að slá KR út með öruggum hætti á Sauðárkróki en sá leikur varð þó æsispennandi í lokin. Grindavík vann svo 1. deildarlið Aþenu. Tindastóll var sextán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann gegn KR í kvöld, 61-45, og komst svo í 66-45. Þá tók við hreint ótrúlegur kafli hjá gestunum sem skoruðu næstu tuttugu stig í röð og náðu að minnka muninn í eitt stig, þegar enn voru rúmar tvær mínútur eftir. Sauðkrækingar voru hins vegar sterkari á lokakaflanum og Marta Hermida tryggði þeim sigurinn með tveimur vítaskotum þegar fjórtán sekúndur voru eftir, 72-68. Hermida skoraði alls 30 stig í leiknum og Madison Sutton var með 16 stig og 11 fráköst. Hjá KR var Jiselle Thomas stigahæst með 16 stig og Molly Kaiser skoraði 15. Beeman og Isabella með tröllatvennu Grindavík var fimm stigum undir gegn Aþenu eftir fyrsta leikhluta, 26-21, en náði svo forystunni og var 39-35 yfir í hálfleik. Enn var spenna í leiknum fyrir síðasta leikhlutann, þegar staðan var 64-53, en Grindvíkingar gerðu þar út um leikinn og komust mest 19 stigum yfir, 80-61, en unnu 80-69. Abby Beeman skoraði 23 stig, tók 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar fyrir Grindavík og Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 17 stig og tók 12 fráköst. Hjá Aþenu var Katarzyna Trzeciak stigahæst með 21 stig og 9 fráköst en Jada Smith kom næst með 16 stig.
VÍS-bikarinn Mest lesið Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Enski boltinn Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Enski boltinn Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Íslenski boltinn Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Fótbolti Fleiri fréttir Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum Sjá meira