Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Árni Sæberg skrifar 15. janúar 2026 10:44 Hildur Margrét Jóhannsdóttir er starfandi aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Ívar Fannar Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30 prósent á milli mánaða í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 4,5 prósentum í 5,1 prósent. Janúarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í mánuðinum en breytingar á gjaldtöku ökutækja hafa mest áhrif til hækkunar, samkvæmt spánni. Mikil óvissa sé þó um hvernig Hagstofan tekur breytingarnar inn í verðmælingar. Deildin spáir því að verðbólga verði í kringum fimm prósent næstu mánuði. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent.
Í nýrri hagsjá Landsbankans segir að verðbólga hafi sveiflast töluvert síðustu mánuði. Hún hafi minnkað úr 4,3 prósentum í 3,7 prósent í nóvember en aukist svo aftur í 4,5 prósent í desember. Eins og alltaf í janúar vegi hækkanir á gjaldskrám og sköttum á móti janúarútsölum og árstíðabundnum lækkunum á flugfargjöldum til útlanda. Ætla megi að breytingar á vörugjöldum bifreiða auk lækkunar á styrk til kaupa á rafbílum hafi áhrif til hækkunar í janúar. Breyting á fyrirkomulagi kílómetragjalds og niðurfelling á bensín- og olíugjöldum muni einnig hafa áhrif til hækkunar gangi spáin eftir. Þá telji deildin að greidd húsaleiga hækki meira en síðustu mánuði og að húsnæðiskostnaður í heild hafi nokkur áhrif til hækkunar í mánuðinum. Á móti hafi janúarútsölur og lækkun á flugfargjöldum til útlanda áhrif til lækkunar. Hagstofan birti vísitölu neysluverðs 29. janúar næstkomandi. Í hagsjánni segir enn fremur að deildin spái því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30 prósent í janúar, 0,76 prósent í febrúar, 0,46 prósent í mars og 0,69 prósent í apríl. Gangi spáin eftir verði verðbólga 5,1 prósent í janúar, 4,9 prósent í febrúar, 5,0 prósent í mars og 4,8 prósent í apríl. „Spáin er töluvert hærri en síðasta spá, en það skýrist að langmestu leyti af meiri hækkun á verði nýrra bíla en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá.“ Greiningardeild Arion banka spáir því að verðbólga fari í fimm prósent þegar næsta mæling verður birt, líkt og Innherji fjallaði um í gær.
Verðlag Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Seðlabankinn Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira