Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2026 13:34 Útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna á götum Minneapolis í gærkvöldi. AP/John Locher Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ef ráðamenn í Minnesota, sem hann kallar spillta, fylgi ekki lögum og stöðvi mótmæli gegn útsendurum Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE), muni hann taka yfir stjórn þjóðvarðliðs ríkisins eða mögulega senda þangað hermenn.
Þetta segir forsetinn í færslu á Truth Social þar sem hann talar um að beita lögum sem ætlað er að berjast gegn uppreisn í Bandaríkjunum. Hann segir mótmælendur vera „atvinnu- æsingarmenn“ og uppreisnarmenn sem ráðist á föðurlandsvinina sem vinna fyrir ICE. Þeir séu eingöngu að reyna að vinna vinnu sína. Verði þessir uppreisnarmenn ekki stöðvaðir af ráðamönnum í Minnesota segist Trump ætla að beita áðurnefndum lögum, sem á ensku kallast „Insurrection act“ og voru samin árið 1792, og binda fljótt enda á mótmælin. Spenna í Minnesota Mikil óreiða ríkir í Minnesota en þangað hefur ríkisstjórn Trumps sent þúsundir útsendara alríkisins. Þar er þeim ætlað að finna fólk sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum og rannsaka spillingu. Ein kona var skotin til bana af starfsmanni ICE í síðustu viku og í gærkvöldi var maður skotinn í fótinn. Sjá einnig: Mikil spenna í Minneapolis eftir banaskot ICE-liða Ítrekað hefur komið til mótmæla í borgum og bæjum Minneapolis á undanförnum vikum og hafa útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna beitt táragasi og hvellsprengjum gegn mótmælendum. Lögreglustjóri og borgarstjóri Minneapolis héldu blaðamannafund um stöðuna í gærkvöldi. Þar báðu þeir meðal annars mótmælendur að sýna stillingu og hætta að bíta á agn áðurnefndra útsendara. Minnesota-ríki og yfirvöld í borgunum Minneapolis og St. Paul hafa höfðað mál gegn ríkisstjórn Trumps og krefjast þess að ríkinu verði gert að fjarlægja útsendara heimavarnaráðuneytisins. Fyrr í dag neitaði alríkisdómari að meina ríkisstjórninni að hafa útsendara ráðuneytisins í Minnesota og gaf ríkisstjórninni frest til að bregðast við kröfu ráðamanna í ríkinu.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Fjöldi fólks kom saman í Minneapolis og Portland í Bandaríkjunum í gær til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í innflytjendamálum undanfarna daga. Meira en þúsund mótmæli hafa verið skipulögð um helgina um landið allt og er þess krafist að stjórnvöld stöðvi aðgerðir. 10. janúar 2026 13:32 „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Donald Trump Bandaríkjaforseti kemur ICE, innflytjendaeftirliti Bandaríkjanna, til varnar eftir að fulltrúi ICE skaut í dag 37 ára bandarískan ríkisborgara til bana í Minneapolis í Minnesota. Ríkisstjóri Minnesota harmar atvikið en biðlar til íbúa að halda ró sinni, „bíta ekki á agnið“ og trúa ekki „áróðursvél“ Trump-stjórnarinnar. Ríkisstjórinn vill meina að aðgerðir ICE í borginni séu til þess fallnar að skapa óreiðu. 7. janúar 2026 22:25 Walz hættir við framboð vegna árása Trump-liða Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota og varaforsetaefni Kamölu Harris, tilkynnti í gær að hann væri hættur við að bjóða sig fram til þriðja kjörtímabilsins sem ríkisstjóri. Walz sagði að árásir Donalds Trump, forseta, og Repúblikana á hann og ríkið hefðu valdið miklum vandræðum og hann gæti ekki bæði sinnt starfi sínu sem ríkisstjóri og unnið að framboði sínu á sama tíma vegna þeirra. 6. janúar 2026 13:30 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Fjöldi fólks kom saman í Minneapolis og Portland í Bandaríkjunum í gær til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í innflytjendamálum undanfarna daga. Meira en þúsund mótmæli hafa verið skipulögð um helgina um landið allt og er þess krafist að stjórnvöld stöðvi aðgerðir. 10. janúar 2026 13:32
„Trúið ekki þessari áróðursvél“ Donald Trump Bandaríkjaforseti kemur ICE, innflytjendaeftirliti Bandaríkjanna, til varnar eftir að fulltrúi ICE skaut í dag 37 ára bandarískan ríkisborgara til bana í Minneapolis í Minnesota. Ríkisstjóri Minnesota harmar atvikið en biðlar til íbúa að halda ró sinni, „bíta ekki á agnið“ og trúa ekki „áróðursvél“ Trump-stjórnarinnar. Ríkisstjórinn vill meina að aðgerðir ICE í borginni séu til þess fallnar að skapa óreiðu. 7. janúar 2026 22:25
Walz hættir við framboð vegna árása Trump-liða Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota og varaforsetaefni Kamölu Harris, tilkynnti í gær að hann væri hættur við að bjóða sig fram til þriðja kjörtímabilsins sem ríkisstjóri. Walz sagði að árásir Donalds Trump, forseta, og Repúblikana á hann og ríkið hefðu valdið miklum vandræðum og hann gæti ekki bæði sinnt starfi sínu sem ríkisstjóri og unnið að framboði sínu á sama tíma vegna þeirra. 6. janúar 2026 13:30