Kynþáttahyggja forseta Bandaríkjanna og Grænland Þorsteinn Gunnarsson skrifar 15. janúar 2026 16:00 Hótanir Trump forseta Bandaríkjanna um að leggja undir sig Grænland, næsta nágranna Íslands, með góðu eða illu hafa vakið ugg í brjósti margra. Í DV í dag, 15. janúar, segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands, sem þekkir fleiri bandaríska ráðamenn en flestir íslenskir stjórnmálamenn, að hann útiloki ekki að Bandaríkin muni taka Grænland með valdi en segir jafnframt að: „Afleiðingarnar yrðu af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð á okkar lífskeiði.“ Þær skýringar sem komið hafa fram um ástæður ásælni Trump í Grænland eru algengastar að hann ásælist sjaldgæfa málma þar sem notaðir eru í hernaðarlegum tilgangi og hann sé að koma í veg fyrir valdatöku Rússlands eða Kína á Grænlandi. Báðar þessar skýringar halda ekki vatni. Grænland er opið fyrir bandarísk fyrirtæki að nýta þessa málma og Bandaríkin eru með virkan varnarsamning við Grænland sem gefur hvorki Rússlandi né Kína færi á að ná yfirráðum á Grænlandi, sem fremi sem Bandaríkin ræki skyldur sínar samkvæmt þessum samningum. Trump sjálfur hefur sagt við blaðamenn vestra að það séu sálfræðilegar ástæður fyrir þessari ásælni hans í Grænland en lítið hefur farið fyrir því hjá fjölmiðlum að greina hverjar þessar sálrænu ástæður gætu verið. Ein gæti verið alkunn hégómagirnd forsetans m.a. að geta veifað korti af Grænlandi í bandarísku fánalitunum og sagt sinni þjóð „þetta eignaðist ég fyrir ykkur.“ Önnur og veigameiri skýring er kynþáttahyggja Trump með tilheyrandi ranghugmyndum um yfirburði hvíta mannsins gagnvart þeim sem eru af öðrum uppruna. MAGA (Make America Great Again), áhrifamesta stuðningshreyfing Trump, er ákall um afturhvarf til þess tíma þegar hvíti maðurinn var herra annarra og „óæðri“ kynþátta í Bandaríkjunum. MAGA hreyfingin er hugmyndafræðilegur arftaki Ku Klux Klan (KKK) sem stundaði hryðjuverk á svörtu fólki í Bandaríkjunum allt frá kirkjubrennum til aftaka án dóms og laga. MAGA og KKK hafa sömu markmið að viðhalda forræði hvíta mannsins en nota mismunandi leiðir að því markmiði, enn sem komið er. Samkvæmt kynþáttahyggju Trump eru inúítar á Grænlandi óæðri kynstofn sem hann lýsir m.a. fyrirlitningu sinni á með því að draga upp þá mynd af landi þeirra að „frumstæð“ tækni eins og hundasleðar séu aðaleinkenni samfélagsins. Þetta hundaflaut Trump eru skýr skilaboð til MAGA hreyfingarinnar um að hann sé tryggja stöðu hvíta kynstofnsins í N- Ameríku þar sem inúítarnir á Grænlandi séu ekki færir um að tryggja varnir eigin samfélags. Heimsbyggðin hefur nöturlega reynslu af þjóðhöfðingjum sem stjórnast af stækri kynþáttahyggju og til allrar hamingju hafa þeir liðið undir lok annað hvort af eigin völdum eða annarra. Verra er að hér á Íslandi, sem hefur gefið sig út fyrir að vera einn nánasti bandamaður Grænlands, fyrirfinnast alþingismenn sem afsaka glórulausar hótanir Trumps gagnvart Grænlandi. Við verðum að gera þá lágmarkskröfu til íslenskra stjórnmálamanna að þeir standi heils hugar með grænlensku þjóðinni á þessum erfiðu tímum. Þegar harðstjórinn Trump verður kominn á öskuhauga sögunnar gætu það orðið nöturleg eftirmæli um þessa þingmenn, sem sumir hverjir stæra sig mjög af þjóðrækni, að hafa myndað fimmtu herdeild Trump á Íslandi gegn Grænlandi og eigin þjóð. Höfundur stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum, býr í Garðabæ og er áhugamaður um öflugt frjálst Grænland Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bandaríkin Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar