Er betra að fólk sé sett á sakamannabekk en að stjórnmálamenn vinni vinnuna sína? Ólafur Stephensen skrifar 16. janúar 2026 11:30 Í síðustu grein var fjallað um það hvernig stjórnmálamenn hafa heykzt á því viðfangsefni sínu að ráðast í heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni sem taki tillit til samfélags- og viðskiptaþróunar undanfarinna áratuga, m.a. þróunar innlendrar og erlendrar netverzlunar. Taldi dómsmálaráðuneytið þó mikilvægt í erindi til Félags atvinnurekenda fyrir fjórum árum að ráðast í slíka endurskoðun. Af henni hefur svo ekki heyrzt meir. Mismunandi lestur þriggja ráðherra á lögunum Það er forvitnilegt að skoða ummæli ráðamanna um áfengislöggjöfina og netverzlun með áfengi undanfarin ár. Í þættinum Dagmálum, sem birtist á mbl.is 21. júlí 2021 og einnig var greint frá í Morgunblaðinu sama dag, lýsti Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra því mati sínu að netverzlanir með áfengi störfuðu „innan ramma EES-samstarfsins.“ Jafnframt sagðist hann eiga erfitt með að sjá að netverzlun með áfengi stangaðist á við lög og að hann fagnaði netverzlun með áfengi, hún væri frábær viðbót. Í viðtali við mbl.is 14. júní 2023 sagði Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra, sem fór með málefni áfengislöggjafarinnar, að hann gæti ekki dregið aðra ályktun en þá að vefverzlun með áfengi væri lögmæt. Núverandi fjármála- og efnahagsráðherra, Daði Már Kristófersson, sem fer nú með málefni áfengislöggjafarinnar, sagði í viðtali við sama miðil 5. janúar sl., aðspurður um ákæru og aðrar aðgerðir lögreglu gagnvart vefverslun með áfengi: „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum.“ Það er hlutverk stjórnvalda, ríkisstjórnar og Alþingis, að setja löggjöf sem er skýr og skiljanleg borgurunum. Það að ráðherrar og þingmenn skilji löggjöfina með gjörólíkum hætti eins og þessar tilvitnanir bera vott um, sýnir betur en ýmislegt annað þörfina á því að endurskoða hana og skýra, þannig að fyrirtæki sem starfa á áfengismarkaðnum viti að hverju þau ganga. Ráðherra í mótsögn við sjálfan sig Í viðtali á Rás 2 hinn 6. janúar sl. lýsti Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, þeirri skoðun að leiðin til að skýra áfengislöggjöfina hvað varðaði netverzlun með áfengi væri að ákæra lögreglunnar á hendur forsvarsmanni Kjútís, félagsmanns FA sem rekur netverzlun með áfengi, færi fyrir dómstóla. Að dómi fengnum gæti svo farið að fjármála- og efnahagsráðuneytið setti fram tillögur að breytingu á löggjöfinni, sem færu svo í samráðsferli og mögulega til afgreiðslu á Alþingi. Í áðurnefndu viðtali við mbl.is virðist fjármála- og efnahagsráðherra lýsa sömu skoðun, þegar hann segir: „Oft er það þannig að túlkun laga þróast í gegnum dómstóla. Það er ekki heppilegt og betra er ef lög eru þannig að það þurfi ekki en þetta er ekki einsdæmi.“ Þessi ummæli ráðherra benda raunar til þess að hann telji löggjöf um netverzlun með áfengi alls ekki skýra – en því hafði hann hafnað litlu framar í viðtalinu og sagt að ekkert væri óskýrt í löggjöfinni. Verkefni stjórnmálanna slegið á frest ... Félag atvinnurekenda sendi Daða Má erindi fyrr í vikunni og lýsti sig algjörlega ósammála þeirri skoðun að bezt sé að löggjöfin þróist fyrir tilstilli dómstóla. Svo virðist sem stjórnmálamenn, þar með taldir fjármála- og efnahagsráðherra og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, treysti sér ekki til að fara í þá endurskoðun áfengislöggjafarinnar, sem er löngu tímabær, og kjósi að slá viðfangsefninu á frest með því að láta ákæru á hendur félagsmanni FA ganga sína leið fyrir dómstólum. ... og einstaklingar frekar settir á sakamannabekk Fremur en að sinna þeirri skyldu sinni að hafa frumkvæði að því að laga löggjöfina að þróun samfélags og tækni, kjósa þeir að setja einstaklinga á sakamannabekk, því að í ákærunni á hendur forsvarsmanni Kjútís er þess krafizt að viðkomandi verði dæmdur til fangelsisrefsingar. Það er svo áleitin spurning, fari svo að dómstólar dæmi félagsmann FA til refsingar fyrir að starfa á grundvelli ákvæða EES-samningsins um frjálsa vöruflutninga, hvort forsvarsmenn allra hinna fyrirtækjanna sem stunda netverzlun með áfengi við íslenzka viðskiptavini, þar á meðal stjórnendur hjá alþjóðlegum stórfyrirtækjum, fái sömu meðferð hjá valdinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Áfengi Tengdar fréttir Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Félag atvinnurekenda hefur sent Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra erindi og hvatt ráðherrann til að hafa frumkvæði að endurskoðun áfengislöggjafarinnar. 15. janúar 2026 12:17 Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Félag atvinnurekenda hefur sent Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra erindi og hvatt ráðherrann til að hafa frumkvæði að endurskoðun áfengislöggjafarinnar. 15. janúar 2026 12:17
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar