Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Agnar Már Másson skrifar 17. janúar 2026 18:43 Trump vill leggja Grænland undir sig og hefur boðað tolla á fjölda Evrópuríkja vegna þess. Vísir/EPA Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir stuðningi við Grænland og Danmörku í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað tolla á lönd sem styðja Grænland. Hún segist ekki trúa því að tollastríð „færi okkur nær lausn í þessu máli“ en Trump vill leggja undir sig landið.
Donald Trump tilkynnti í dag að hann hygðist leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. „Ísland stendur sem fyrr með Grænlandi og konungsríkinu Danmörku. Okkar afstaða er skýr og hún er óbreytt. Það er Grænlendinga einna að ráða sinni framtíð. Fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða ber að virða. Um það er breið samstaða meðal Norðurlandanna, Evrópuríkja og Kanada,“ segir í skriflegri yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar til Vísis. Hún baðst undan viðtali. „Við höfum ekki trú á að tollastríð færi okkur nær lausn í þessu máli.“ Fleira kemur ekki fram í yfirlýsingunni. Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðli sínum í dag segir hann sömuleiðis að tollurinn muni hækka um 15 prósentustig og nema 25 prósentum 1. júní hafi Bandaríkjamenn ekki fengið yfirráð yfir Grænlandi. Ekkert bendir til þess í færslu Trump að Ísland verði fyrir barðinu á þessum tollum þrátt fyrir að tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafi verið sendir til Grænlands. Norðmenn sendu aðeins tvo fulltrúa síns hers. Vísir ræddi við stjórnmálafræðinginn Baldur Þórhallsson fyrr í dag en hann telur Íslendinga ekki geta útilokað að Donald Trump Bandaríkjaforseti leggi toll á Ísland einnig. „Ég held að það megi efast um að hann sé hættur þarna,“ sagði stjórnmálafræðingurinn. Bandaríkjaforseti á ekki að geta lagt sérstaka tolla á Danmörku án þess að leggja tolla á öll Evrópusambandsríkin enda eru þau í tollabandalagi. Bandaríkin geta aftur á móti lagt toll á einstaka vörur sem eru mikilvægur útflutningur þessara landa, svo sem lyf frá Danmörku. Fréttin hefur verið uppfærð.
Grænland Donald Trump Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira