Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Sindri Sverrisson skrifar 21. janúar 2026 14:32 Einar Þorsteinn Ólafsson átti magnaða innkomu gegn Ungverjum í gærkvöld. Vísir/Vilhelm Einar Þorsteinn Ólafsson segist aldrei á ævinni hafa verið eins slappur eins og dagana áður en hann mætti Ungverjum í gær og sló í gegn. „Stórkostlegur,“ sögðu sérfræðingarnir í Besta sætinu og dásömuðu samvinnu hans og Elliða Snæs Viðarssonar.
Rætt var um Einar Þorstein, óvæntu stjörnuna í sigrinum sæta í gær, í Besta sætinu sem hlusta má á hér að neðan. Einnig er hægt að finna þáttinn á hlaðvarpsveitum. Þeim Einari Jónssyni, Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Stefáni Árna Pálssyni leist ekki á blikuna í gærkvöld, þegar Elvar Örn Jónsson fór meiddur af velli og Ýmir Örn Gíslason fékk svo rautt spjald. Varnarparið farið í hnífjöfnum hörkuleik. „Svo bara gerast töfrar eins og hafa verið að gerast á þessu móti. Elliði fer í þristinn [miðja vörnina] og Einar Þorsteinn kemur inn á. Hann byrjaði skelfilega, fyrstu tvær þrjár varnirnar, og þeir voru bara að finta hann upp úr skónum. Svo er hann bara STÓRKOSTLEGUR. Mér fannst hann rosalegur,“ sagði Einar Jónsson. Efaðist sjálfur um að hann fengi að spila Frammistaða nafna hans, Einars Þorsteins, er ekki síður athyglisverð í ljósi þess að hann hafði verið í einangrun á hótelherbergi í fimm daga á undan, vegna veikinda, og var enn nefmæltur þegar hann talaði við Vísi eftir sigurinn í gær. „Heilsan? Hún er á uppleið. Ég held að það sé hægt að segja það. Þessir seinustu dagar eru búnir að vera ógeðslegir. Einn inni í herbergi, einangraður og var ekki viss hvort ég myndi endilega fá að vera með í hóp í dag, en einhvern veginn endaði þetta svona. Núna er allt betra,“ sagði Einar Þorsteinn. „Maður veit ekkert hvernig heilsan er á honum [Einari Þorsteini] en þeir Elliði voru bara… við fengum á okkur níu mörk í seinni hálfleik!“ sagði Einar Jónsson og Ásgeir Örn tók þá við: „Þeir voru eiginlega miklu betri sem par en Ýmir og Elvar. Þeir harmóneruðu helvíti vel. Árásirnar frá þeim, Fazekas og Hanusz, sem við vorum búnir að vera í tómu veseni með, þar sem Ýmir var oft mjög týndur og Elvar í brasi… þetta sáum við bara ekki í seinni hálfleik. Einar er mikið sneggri á löppunum, les þetta örlítið betur, og gerði þetta geðveikt vel. Hann fékk líka tækifæri á að vera dálítið framar og var oft kominn upp á 14 metra, og vissi bara hvar árásin var að fara að koma.“ Umræðuna má heyra í heild sinni í hlaðvarpsþættinum Besta sætinu á helstu hlaðvarpsveitum sem og í spilaranum hér að ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir „Mér líður bara ömurlega“ Elvar Örn Jónsson var að vonum niðurlútur á hóteli íslenska landsliðsins þegar fjölmiðlamenn bar að garði í hádeginu. 21. janúar 2026 12:23 „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Eftir arfaslaka frammistöðu dómaraparsins frá Norður-Makedóníu í leik Íslands og Ungverjalands í gærkvöldi leitaði Bítið á Bylgjunni viðbragða frá fagmanni. 21. janúar 2026 10:30 Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Viktor Gísli Hallgrímsson átti einn besta landsleik sem íslenskur markvörður hefur átt þegar Ísland vann Ungverjaland, 23-24, í spennutrylli í F-riðli Evrópumótsins í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:02 „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Vel lá á Viktori Gísla Hallgrímssyni eftir eins marks sigur Íslands á Ungverjalandi, 23-24, í F-riðli á Evrópumótinu í handbolta í dag. Viktor átti stórleik og varði 23 skot. 20. janúar 2026 22:26 Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Einar Jónsson mætti ásamt Ásgeiri Erni Hallgrímssyni í Besta sætið í gær, hlaðvarpsþátt Íþróttadeildar Sýnar, þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Ungverjalands á EM í handbolta. 21. janúar 2026 07:33 Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Fleiri fréttir Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Sjá meira
„Mér líður bara ömurlega“ Elvar Örn Jónsson var að vonum niðurlútur á hóteli íslenska landsliðsins þegar fjölmiðlamenn bar að garði í hádeginu. 21. janúar 2026 12:23
„Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Eftir arfaslaka frammistöðu dómaraparsins frá Norður-Makedóníu í leik Íslands og Ungverjalands í gærkvöldi leitaði Bítið á Bylgjunni viðbragða frá fagmanni. 21. janúar 2026 10:30
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Viktor Gísli Hallgrímsson átti einn besta landsleik sem íslenskur markvörður hefur átt þegar Ísland vann Ungverjaland, 23-24, í spennutrylli í F-riðli Evrópumótsins í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:02
„Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Vel lá á Viktori Gísla Hallgrímssyni eftir eins marks sigur Íslands á Ungverjalandi, 23-24, í F-riðli á Evrópumótinu í handbolta í dag. Viktor átti stórleik og varði 23 skot. 20. janúar 2026 22:26
Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Einar Jónsson mætti ásamt Ásgeiri Erni Hallgrímssyni í Besta sætið í gær, hlaðvarpsþátt Íþróttadeildar Sýnar, þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Ungverjalands á EM í handbolta. 21. janúar 2026 07:33