Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. janúar 2026 14:35 Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í borgarstjórn gerir alvarlegar athugasemdir við ákvörðun meirihlutans vegna Félagsbústaða. Vísir/Hjalti Meirihlutinnn í borgarstjórn hefur ákveðið að veita um 2,4 milljörðum til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Borgarstjóra er falið að hafa milligöngu um málið. Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir tillöguna hafa verið þvingaða fram. Ákveðið hafi verið að hunsa nýja skýrslu starfshóps í málinu.
Meirihlutinn í borgarstjórn lagði til á fundi borgarstjórnar í gær að Reykjavík skuldbindi sig til að veita Félagsbústöðum 513 milljónir í árlegt eiginfjárframlag næstu þrjú árin og 263 milljónir á ári næstu tvö ár þar á eftir. Auk þess er lagt til að 300 milljónir verði veittar 2025, með viðauka. Vilja tryggja að fleiri eignist heimili Heiða B. Hilmisdóttir borgarstjóri á að hafa milligöngu um að útfæra næstu skref. „Við erum að leggja þetta eiginfjárframlag til Félagsbústaða. Bæði til að styrkja rekstrarstöðu Félagsbústaða og líka til að tryggja að við getum fjölgað félagslegu húsnæði og mætt biðlistum fyrir slíka búsetu. Það þarf að tryggja að fleiri eignist heimili,“ segir Heiða. Heiða segir gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun borgarinnar sem var samþykkt fyrir skömmu og sé hluti af fjárfestingu borgarinnar. . „Við gerðum ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun borgarinnar en vorum ekki búin að leggja fram tillöguna. Nú er hún komin fram og það er gert ráð fyrir þessu í fjárfestingarhluta fjárhagsáætlunar borgarinnar,“ segir Heiða. Heiða segir að ákveðið hafi verið að halda trúnaði um skýrslu verkefnishóps á fundi borgarstjórnar með tillögum um hvernig hægt sé að haga rekstri Félagsbústaða því hún sé í umsagnarferli. „Það ríkir alltaf trúnaður um skýrslur þangað til þær eru gerðar opinberar. Það eru nokkrar sviðsmyndir sem þar eru lagðar fram um framtíðartilhögun í rekstri. Framsókn gerir alvarlegar athugasemdir Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í borgarstjórn gagnrýndi á fundi borgarstjórnar trúnaðir ríkti um skýrsluna sem hafi þegar verið kynnt. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við samþykkti meirihlutans. „Þetta er alvarlegt mál. Meirihlutinn ákvað einfaldlega að hunsa skýrslu starfshóps sem hefur rýnt rekstur Félagsbústaða undanfarna mánuði um hvernig megi tryggja sjálfbæran rekstur. Meirihlutinn trúnaðarmerkti þessa skýrslu. Felur skýrsluna fyrir borgarstjórn og borgarbúum en þvingar hins vegar fram í borgarstjórn í gær það sem hún kallar pólitískar tillögur um félagsbústaði. Þar á að setja tæpan tvo og hálfan milljarð inn í fyrirtækið til að kaupa íbúðir á frjálsum markaði og yfirbjóða fjölskyldurnar í borginni. Það er engin áhættugreining eða fjárhagslegar forsendur sem eru kynntar. Við vildum fresta málinu, opinbera skýrsluna og ræða stöðu Félagsbústaða út frá henni. Það var ekki hægt því asinn var svo mikill því borgarstjóri er í prófkjöri og þetta var síðasti borgarstjórnarfundur fyrir kjördag,“ segir Einar. Heiða segir um gagnrýni minnihlutans í málinu: „Mér finnst gagnrýni minnihlutans vera sett fram til að dreifa athyglinni frá því stóra skrefi sem Reykjavíkurborg er að taka.“ segir Heiða.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Félagsmál Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira