Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. janúar 2026 20:52 Gísli Þorgeir Kristjánsson á ferðinni í leiknum gegn Svíþjóð sem Ísland vann örugglega, 35-27. vísir/vilhelm Ekki eru allir sáttir með fyrirkomulagið á Evrópumótinu í handbolta. Þeirra á meðal er Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins.
Liðin í milliriðli I á EM spila alltaf annan hvern dag á meðan liðin í milliriðli II, sem Ísland er í, spila síðustu tvo leiki sína á þriðjudag og miðvikudag. Þá þurfa þrjú efstu liðin í milliriðli II að ferðast frá Malmö til Herning á fimmtudaginn. Á föstudaginn verður svo leikið til undanúrslita og um 5. sætið. Álagið á liðin í milliriðli II er því umtalsvert meira en á liðin í milliriðli I. „Þetta er frekar skrítið fyrir okkur í þessum milliriðli. Þetta er eins fyrir okkur öll en þegar við berum saman er skrítið að við þurfum að spila tvo daga í röð á meðan hinn riðillinn fær frídag. En svona er þetta bara,“ sagði Gísli í samtali við TV 2 í Danmörku er hann var spurður út í fyrirkomulagið á EM. Hann segir að þetta gæti haft áhrif í stóru leikjunum á föstudaginn. Getum ekki breytt þessu „Þúsund prósent örugglega. Því liðin úr þessum riðli munu þjást. Leikir tvo daga í röð og svo þarf maður að ferðast til Herning. Ég held að það taki fjóra til fimm tíma og það er eftir leik þar sem maður hefur yfirleitt sofið illa. Svo er bara einn leikur fyrir úrslitaleikinn. En þetta er eins og það er. Ég ætla ekki að kvarta of mikið og við getum ekki breytt þessu.“ Chema Rodríguez, þjálfari Ungverjalands, og Denis Spoljaric, aðstoðarþjálfari Króatíu, taka í sama streng og Gísli. En Tobias Karlsson, liðsstjóri Svíþjóðar, og Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari Íslands, velta sér lítið upp úr þessum aðstæðum. „Það er víst alltaf lið sem heldur mótið sem fær hvíldardag. Þetta er eins og það er. Þetta er ekkert. Við fengum auka dag eftir riðlakeppnina okkar svo það er ekkert í þessu,“ sagði Arnór. Fyrirkomulagið lá fyrir Í svari EHF, Handknattleikssambands Evrópu, til TV 2 segir að þátttökuliðin á EM hafi vitað hvernig fyrirkomulagið á mótinu yrði með löngum fyrirvara. Í svarinu segir einnig að riðlakeppnin í Malmö hófst síðar en aðrir riðlar, 17. janúar, og liðin sem komu frá Osló og Kristianstad, eins og Ísland, hafi fengið auka dag áður en keppni í milliriðli II hófst. Ísland mætir Sviss í Malmö klukkan 14:30 á morgun.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir EM í dag: Snjóstormur í Malmö og samsæriskenningar úr austrinu EM í dag er tekið upp innandyra á hóteli starfsmanna Sýnar í Malmö enda er enn verið að glíma við veikindi í hópnum. 26. janúar 2026 17:47 „Fókusinn er upp á tíu hjá okkur“ „Maður lagðist glaður á koddann í gær með tvö stig og frábæran leik,“ segir varnarjaxlinn Ýmir Örn Gíslason afar sáttur með leikinn gegn Svíum í gær. 26. janúar 2026 16:47 Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Drazen Pinevic, blaðamaður króatíska miðilsins Sportske Novotski, ritar pistil í dag þar sem hann er ansi harðorður í garð sænska landsliðsins eftir átta marka tap liðsins gegn Íslandi á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 14:36 Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Viggó Kristjánsson var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í mögnuðum sigri Íslands gegn Svíþjóð í gær, á EM í handbolta, og af því tilefni hefur verið rifjað upp að á sínum tíma var Viggó ekki í handbolta heldur fótboltamaður hjá einu besta liði Íslands. 26. janúar 2026 14:00 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það „Éttu þetta Andreas Stockenberg,“ skrifar Alma Möller heilbrigðisráðherra á Facebook og deilir í leiðinni grein Handkastsins þar sem farið er yfir það þegar sænski þjálfarinn Stockenberg fór yfir dapran leikstíl íslenska landsliðsins á X-inu, að hans mati. 26. janúar 2026 12:30 Greip frá þeim skotfastasta og pakkaði vonarstjörnu Svía saman Viktor Gísli Hallgrímsson átti eina bestu markvörslu EM í sigrinum gegn Svíum í gær og greip líka skot frá „skotfastasta manni mótsins“. Gríðarlega mikilvægur, eins og sérfræðingarnir í Besta sætinu ræddu um í nýjasta þættinum. 26. janúar 2026 12:00 Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Leikmenn sænska landsliðsins eru á því að Svíar séu of góðir við mótherja sína en atvik í leik liðsins gegn Íslandi á EM í handbolta í gær hefur vakið furðu ytra. 26. janúar 2026 11:34 Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Felix Claar er ein helsta stjarna sænska landsliðsins í handbolta en hann náði bara að skora eitt mark gegn Íslandi í gær og var sjálfsgagnrýninn eftir átta marka tapið. 26. janúar 2026 10:31 Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Sérfræðingar Besta sætisins héldu vart vatni yfir frammistöðu Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í átta marka sigri Íslands á Svíþjóð á EM í handbolta í gær. Menn tóku hatt sinn ofan, átu sokk, en umfram allt dáðust að Gísla Þorgeiri og því hvernig hann hefur tekið af skarið sem leiðtogi innan vallar. 26. janúar 2026 10:00 Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Eftir sigur Íslands á Svíþjóð í gærkvöld eru fjórar þjóðir jafnar með fjögur stig í okkar milliriðli. Íslendingar eru þar efstir þrátt fyrir að Svíar hafi safnað flestum stigum innbyrðis af þessum fjórum liðum. 26. janúar 2026 08:32 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hefur átt í vök að verjast á samfélagsmiðlum eftir að hann hraunaði yfir íslenska landsliðið sem svo valtaði yfir það sænska á EM í gær. 26. janúar 2026 07:32 „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Viggó Kristjánsson var öðrum fremur maður leiksins í stórsigrinum á Svíum á EM í handbolta í gærkvöldi og með magnaðri innkomu hans kviknaði heldur betur á hægri vængnum hjá íslenska landsliðinu. Örvhentu leikmennirnir í Besta sætinu voru líka ánægðir með þessa innkomu Viggós og líka hvaða áhrif það hafði á Ómar Inga Magnússon. 26. janúar 2026 07:03 Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Svíarnir voru á heimavelli og höfðu unnið alla leiki sína á Evrópumótinu til þessa en þeir áttu ekki möguleika á móti huguðu og hungruðu íslensku landsliði á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 06:20 Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Man. City - Newcastle | Hvaða lið mætir Arsenal á Wembley? Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Fleiri fréttir Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Andrea snýr heim í Olís-deildina Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Biður Dag afsökunar Sjá meira
EM í dag: Snjóstormur í Malmö og samsæriskenningar úr austrinu EM í dag er tekið upp innandyra á hóteli starfsmanna Sýnar í Malmö enda er enn verið að glíma við veikindi í hópnum. 26. janúar 2026 17:47
„Fókusinn er upp á tíu hjá okkur“ „Maður lagðist glaður á koddann í gær með tvö stig og frábæran leik,“ segir varnarjaxlinn Ýmir Örn Gíslason afar sáttur með leikinn gegn Svíum í gær. 26. janúar 2026 16:47
Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Drazen Pinevic, blaðamaður króatíska miðilsins Sportske Novotski, ritar pistil í dag þar sem hann er ansi harðorður í garð sænska landsliðsins eftir átta marka tap liðsins gegn Íslandi á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 14:36
Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Viggó Kristjánsson var að öðrum ólöstuðum maður leiksins í mögnuðum sigri Íslands gegn Svíþjóð í gær, á EM í handbolta, og af því tilefni hefur verið rifjað upp að á sínum tíma var Viggó ekki í handbolta heldur fótboltamaður hjá einu besta liði Íslands. 26. janúar 2026 14:00
Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það „Éttu þetta Andreas Stockenberg,“ skrifar Alma Möller heilbrigðisráðherra á Facebook og deilir í leiðinni grein Handkastsins þar sem farið er yfir það þegar sænski þjálfarinn Stockenberg fór yfir dapran leikstíl íslenska landsliðsins á X-inu, að hans mati. 26. janúar 2026 12:30
Greip frá þeim skotfastasta og pakkaði vonarstjörnu Svía saman Viktor Gísli Hallgrímsson átti eina bestu markvörslu EM í sigrinum gegn Svíum í gær og greip líka skot frá „skotfastasta manni mótsins“. Gríðarlega mikilvægur, eins og sérfræðingarnir í Besta sætinu ræddu um í nýjasta þættinum. 26. janúar 2026 12:00
Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Leikmenn sænska landsliðsins eru á því að Svíar séu of góðir við mótherja sína en atvik í leik liðsins gegn Íslandi á EM í handbolta í gær hefur vakið furðu ytra. 26. janúar 2026 11:34
Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Felix Claar er ein helsta stjarna sænska landsliðsins í handbolta en hann náði bara að skora eitt mark gegn Íslandi í gær og var sjálfsgagnrýninn eftir átta marka tapið. 26. janúar 2026 10:31
Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Sérfræðingar Besta sætisins héldu vart vatni yfir frammistöðu Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í átta marka sigri Íslands á Svíþjóð á EM í handbolta í gær. Menn tóku hatt sinn ofan, átu sokk, en umfram allt dáðust að Gísla Þorgeiri og því hvernig hann hefur tekið af skarið sem leiðtogi innan vallar. 26. janúar 2026 10:00
Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Eftir sigur Íslands á Svíþjóð í gærkvöld eru fjórar þjóðir jafnar með fjögur stig í okkar milliriðli. Íslendingar eru þar efstir þrátt fyrir að Svíar hafi safnað flestum stigum innbyrðis af þessum fjórum liðum. 26. janúar 2026 08:32
Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hefur átt í vök að verjast á samfélagsmiðlum eftir að hann hraunaði yfir íslenska landsliðið sem svo valtaði yfir það sænska á EM í gær. 26. janúar 2026 07:32
„Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Viggó Kristjánsson var öðrum fremur maður leiksins í stórsigrinum á Svíum á EM í handbolta í gærkvöldi og með magnaðri innkomu hans kviknaði heldur betur á hægri vængnum hjá íslenska landsliðinu. Örvhentu leikmennirnir í Besta sætinu voru líka ánægðir með þessa innkomu Viggós og líka hvaða áhrif það hafði á Ómar Inga Magnússon. 26. janúar 2026 07:03
Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Svíarnir voru á heimavelli og höfðu unnið alla leiki sína á Evrópumótinu til þessa en þeir áttu ekki möguleika á móti huguðu og hungruðu íslensku landsliði á EM í handbolta í gær. 26. janúar 2026 06:20
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“